09 mars 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Hvernig er hægt að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu?
Málþing um hvernig hægt sé að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu í skólum verður haldið í Háteig á Grand hóteli fimmtudaginn 12. mars kl. 12:30-16:00. Málþingið er haldið í framhaldi af samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga um vinnustaðamenningu í leik- og grunnskólum 2023-2025 sem félags- og húsnæðismálaráðuneytið styrkti.
Á vef Vinnueftirlitsins er bent á að samkvæmt könnunum upplifi starfsfólk í leik- og grunnskólum meira andlegt áreiti en starfsfólk í mörgum öðrum starfsgreinum. Það undirstriki mikilvægi þess að hlúa sérstaklega að vellíðan þess og vinnuumhverfi.
Niðurstöður samstarfsverkefnisins sýna að markvissar aðgerðir geta bætt vinnustaðamenningu og líðan starfsfólks. Tilgangur málþingsins er að miðla þeim lærdómi sem af verkefninu hlaust og gefa fleiri vinnustöðum tækifæri á að nýta hann.
Fundarstjóri verður Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara.
Málþingið er öllum opið en nauðsynlegt er skrá þátttöku fyrir fram:
Streymi og dagskrá
Hægt verður að fylgjast með málþinginu í streymi:
Á vef Vinnueftirlitsins má nálgast dagskrá málþingsins: