09 mars 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið
Stóraukin þátttaka kvenna í krabbameinsskimunum
Þátttaka kvenna í skimunum fyrir brjóstakrabbameini og leghálskrabbameini hefur aukist verulega síðustu ár og nálgast sett markmið um þátttöku. Alma D Möller heilbrigðisráðherra segir aukna þátttöku skipta gríðarlega miklu máli: „Skipulögð (lýðgrunduð) skimun fyrir krabbameinum getur bjargað mannslífum. Þannig má greina krabbamein á forstigi eða grípa inn í áður en krabbamein myndast og stórauka líkur á lækningu. Ég hvet konur til að mæta þegar boðið kemur“.
Þátttakan í skimunum fyrir brjóstakrabbameini var 65 prósent á síðasta ári og hefur aukist um fjögur prósentustig milli ára. Þátttakan í brjóstaskimunum hefur hækkað hratt síðustu ár. Konur á aldrinum 40 til 74 ára fá reglulega boð í skimun fyrir brjóstakrabbameini. Skimanir fara fram hjá Brjóstamiðstöð Landspítalans, á Sjúkrahúsinu á Akureyri og í færanlegri skimunarstöð sem fer reglulega um landið.
Þátttaka kvenna í skimun fyrir leghálskrabbameinu var 70% á síðasta ári. Hún hafði þá aukist um sex prósentustig á milli ára og hefur hækkað jafnt og þétt síðastliðin ár.
Fjallað er um þátttöku kvenna í krabbameinsskimunum í frétt á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og birt súlurit sem sýna þróun þátttöku árin 2023-2025. Ágúst Ingi Ágústsson, yfirlæknir Samhæfingarmiðstöðvar krabbameinsskimana segir að ef aðeins sé horft til þátttöku íslenskra kvenna í skimunum sé markmiði um 75% þátttöku í leghálsskimunum náð og markmiði um þátttöku í brjóstaskimun færist nær. Aftur á móti sé þátttökuhlutfall kvenna með erlent ríkisfang mun lægra, þótt það fari vaxandi. Fyrir því séu ýmsar ástæður, m.a. að þær fari í einhverjum mæli í skimanir í sínu heimalandi. Þar sé þó hægt að gera betur, ýmislegt hafi verið gert í því skyni sem hafi skilað árangri og áfram verði haldið á þeirri braut.
Konur hvetji konur til að mæta
„Þó það sé gott að sjá að þátttaka í skimunum er að aukast megum við ekki sofa á verðinum. Við þurfum áfram að hvetja konur til að mæta í skimun, og til að spjalla við vinkonur, mæður, dætur og frænkur og minna á skimunina. Svo væri ekki síður tilvalið að spjalla við erlendar vinkonur eða samstarfskonur og hvetja þær til að mæta,“ segir Ágúst Ingi.