10 mars 2026

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Frestur til að skila inn tilnefningum til Kuðungsins framlengdur til 16. mars

{image.Description}

Frestur til að skila inn tilnefningum til umhverfisviðurkenningarinnar Kuðungsins hefur verið framlengdur til 16. mars.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári eru þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2025. Kuðungurinn verður afhentur í tengslum við Dag umhverfisins og eru tilnefningaflokkarnir tveir, fyrir stærri og minni fyrirtæki.

Óskað er eftir því að greinargerð fylgi með tilnefningunni, en við mat á viðurkenningarhöfum er horft til eftirfarandi þátta: Umhverfisstjórnunar, innleiðingar nýjunga í umhverfisvernd, losun gróðurhúsalofttegunda, minni efnanotkunar, lágmörkunar úrgangs, mengunarvarna, umhverfisvænni þróun á vöru eða þjónustu, framlags til umhverfismála, samstarfs í umhverfismálum og vinnuumhverfis.

Fyrirtæki og stofnanir geta bæði tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Tillögur skulu berast umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu eigi síðar en 16. mars nk. merktar „Kuðungurinn“ á netfangið [email protected] eða með pósti í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Á síðasta ári hlutu BM Vallá og Pure North viðurkenningu fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á árinu 2021.

Upplýsingar um fyrri verðlaunahafa