11 mars 2026

/

Heilbrigðisráðuneytið

Veitir félagasamtökum rúmar 90 milljónir króna til góðra verka

{image.Description}
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 91 milljón króna í styrki til félagasamtaka sem vinna að mikilvægum verkefnum á sviði heilbrigðismála í þágu tiltekinna hópa. Alls hlutu 40 verkefni styrk og námu styrkfjárhæðir á bilinu 400.000 til 5.000.000 kr.

Styrkir sem þessir eru veittir árlega af safnliðum fjárlaga, til verkefna á vegum frjálsra félagasamtaka sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Áskilið er að þau falli að opinberri stefnu á sviði heilbrigðis- og lýðheilsumála. Mörg verkefnanna lúta að því að útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslustarfsemi, standa vörð um hagsmuni félagsmanna eða bjóða félagsmönnum upp á ýmis konar stuðning og ráðgjöf. 

Gegna þýðingarmiklu hlutverki fyrir samfélagið

„Félagasamtök sem starfa að heilbrigðis- og lýðheilsumálum eru mörg og verkefni þeirra afar fjölbreytt. Það sem þau eiga sameiginlegt er að innan vébanda þeirra starfa einstaklingar sem eru reiðubúnir að gefa af tíma sínum og orku til að bæta líf annarra og vinna samfélaginu gagn. Því er mikilvægt að stjórnvöld styðji við starfsemi þeirra, líkt og gert er með styrkjum sem þessum,“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

Verkefnin sem hlutu styrk eru fjölbreytt að vanda. Sem dæmi má nefna styrki til Samtaka um POTS og ME-félags Íslands til að afla og miðla fræðslu og þekkingu um sjúkdómsheilkenni á borð við langvinnt Covid, ME-sjúkdóminn og POTS, gerð fræðsluefnis fyrir hjartasjúklinga, fræðslustarf í grunn- og framhaldsskólum um endómetríósu, fíkniráðgjöf og stuðningur fyrir aðstandendur, verkefni um skaðaminnkandi þjónustu og geðræktarverkefni, svo fátt eitt sé nefnt.