16 mars 2026

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Samkomulag um nýtt hjúkrunarheimili við Vetrarmýri í Garðabæ

{image.Description}
Inga Sæland og Almar Guðmundsson á Hrafnistu Ísafold í dag þar sem gengið var frá samkomulaginu.

Ráðgert er að reisa nýtt hjúkrunarheimili með 100 hjúkrunarrýmum við Vetrarmýri í Garðabæ. Inga Sæland, sem fer með uppbyggingu hjúkrunarheimila, og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, undirrituðu samkomulag þessa efnis í dag.

Gert er ráð fyrir að byggingin verði ríflega 8.300 m2 og að hjúkrunarheimilið verði á efri hæðum hennar. Á jarðhæðinni er gert ráð fyrir þjónustumiðstöð.

Samkvæmt samkomulaginu útvegar Garðabær ríkinu lóðina endurgjaldslaust og bygging hússins verður boðin út. Ríkið mun leigja húsnæðið fyrir hjúkrunarheimilið með leigusamningi til 20-30 ára og Garðabær leigir jarðhæðina undir þjónustumiðstöðina. Ráðgert er að nýja hjúkrunarheimilið opni árið 2029.

„Stórsókn ríkisstjórnarinnar í uppbyggingu hjúkrunarheimila heldur áfram og það er mikið gleðiefni að nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili rísi í Garðabæ. Þar verður stutt út í náttúruna og ánægjulegt fyrir íbúana að á jarðhæðinni verður þjónustumiðstöð. Ég óska Garðbæingum og okkur öllum til hamingju,“ segir Inga Sæland.

„Þetta er afar gleðilegur áfangi. Garðabær og félags- og húsnæðismálaráðuneytið vinna saman að uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis sem mun rísa á þessum fallega stað sem Vetrarmýri er. Við í Garðabæ erum svo sannarlega tilbúin og vel undirbúin þannig að hægt verður að ráðast í uppbyggingu hratt og örugglega. Samþykkt deiliskipulag liggur fyrir og er næsta skref því að bjóða út húsnæðið undir hjúkrunarheimilið. Stefnt er að því að allt að 100 hjúkrunarrými verði á efri hæðum byggingarinnar en á jarðhæð verði eins konar þjónustumiðstöð. Við sjáum fyrir okkur lífsgæðakjarna sem mun ekki aðeins þjóna íbúum hjúkrunarheimilisins heldur einnig öllu eldra fólki í Garðabæ,“ segir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar.

 

Inga og Almar stjórnuðu samsöng eftir undirritunina ásamt Benedikt Sigurðssyni, presti í Vídalínskirkju í Garðabæ. 

 Inga Sæland og Almar Guðmundsson á Hrafnistu Ísafold í dag þar sem gengið var frá samkomulaginu.