17 mars 2026
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Fagleg mannauðsstjórnun efld
Fjármála- og efnahagsráðherra lagði fram frumvarp til laga um breytingar á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins á Alþingi í gær. Markmiðið er að bæta opinbera þjónustu, efla faglega mannauðsstjórnun og stuðla að umbótum í ríkisrekstri.
Meginbreytingin sem lögð er til í frumvarpinu er að fella brott skyldu til að veita starfsmanni eða embættismanni formlega áminningu áður en til uppsagnar eða lausnar um stundarsakir getur komið. Eftir sem áður njóta þeir réttarverndar sem felst í því að uppsögn eða lausn um stundarsakir er stjórnvaldsákvörðun sem um gilda stjórnsýslulög.
Neikvætt víkur fyrir uppbyggilegu
Horfið er frá íþyngjandi áminningarferli sem fólk upplifir í mörgum tilfellum neikvætt og jafnvel niðurlægjandi. Þess í stað koma uppbyggilegri aðferðir við að leiðbeina starfsfólki og ná fram úrbótum. Málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga gilda áfram um ákvarðanir um uppsögn og lausn um stundarsakir. Meginreglan verður sú að starfsfólki verður gefið færi á að bæta ráð sitt með leiðbeinandi samtölum eða tilmælum áður en til uppsagnar getur komið. Á því geta þó verið undantekningar ef um er að ræða alvarleg atvik eins og t.d. trúnaðarbrot eða EKKO háttsemi (einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi á vinnustöðum). Í ljósi þess að um er að ræða matskennda ákvörðun skal ætíð gæta meðalhófs og þess að málefnaleg sjónarmið liggi til grundvallar.
Heilbrigt og öruggt starfsumhverfi
Frumvarpið er liður í áframhaldandi framþróun mannauðsmála hjá ríkinu. Markmiðið er að tryggja framúrskarandi grunnþjónustu í takt við síbreytilegar aðstæður í samfélaginu, þar sem starfsfólk ríkisins gegnir lykilhlutverki. Mikilvægt er að samhliða vandaðri stjórnun mannauðsmála geti stofnanir ríkisins skapað starfsfólki heilbrigt og öruggt starfsumhverfi.
Aðrar breytingar á ákvæðum laganna varða einkum ákvæði um auglýsingaskyldu við tilteknar aðstæður, tímabundna setningu í embætti og stöðu embættismanna sem veitt hefur verið lausn um stundarsakir á meðan mál þeirra er til rannsóknar hjá sérstakri nefnd samkvæmt lögunum.
Áhersla var lögð á að fá fram sjónarmið hagaðila við vinnslu frumvarpsins og haldnir reglulegir fundir með þeim. Þá voru efnisatriði frumvarpsdraga kynnt bandalögum launafólks áður en þau voru birt í samráðsgátt. Alls barst 21 umsögn við áformaskjal frumvarpsins í september í fyrra og 14 umsagnir við frumvarpsdrög í febrúar.