17 mars 2026
/
Innviðaráðuneytið
Samkomulag um að efla kennslu fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga mun áfram styrkja verkefni Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS) um að efla kennslu fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál í leik- og grunnskólum utan Reykjavíkur. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra, Þórdís Jóna Sigurðardóttir forstjóri MMS og Jón Björn Hákonarson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga undirrituðu samkomulag þessa efnis í síðustu viku.
Fjárstuðningur Jöfnunarsjóðs nemur 24 milljónum á ári en sjóðurinn hefur styrkt þetta verkefni um árabil.
„Íslenskukunnátta er lykillinn að virkri samfélagsþátttöku. Við finnum öll fyrir því að þörf fyrir markvissan stuðning við börn sem hafa íslensku sem annað tungumál fer stöðugt vaxandi, ekki síst í skólum á landsbyggðinni. Við verðum að tryggja að kerfið okkar sé í stakk búið til að taka vel á móti þeim. Kjarninn í þessu snýst um að styðja við þau sem standa í stafni, kennarana okkar og starfsfólk skólanna. Með því að færa þeim betri verkfæri og námsgögn tryggjum við að börn fái aukin tækifæri til að læra málið, skjóta hér rótum og verða virkir þátttakendur í íslensku samfélagi,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.
Stuðningur og kennsluráðgjöf
Með samkomulaginu tekur MMS að sér að veita öllum sveitarfélögum utan Reykjavíkur stuðning og kennsluráðgjöf vegna nemenda með íslensku sem annað tungumál. Það verður gert í gegnum þróunarverkefnið MEMM – menntun móttaka menning.
Með stuðningi og ráðgjöf er m.a. átt við móttöku og menntun barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn, almennar leiðbeiningar til skóla, námskeið fyrir starfsfólk skóla, útgáfu námsefnis og annarra verkfæra sem og ráðgjöf um íslensku sem annað tungumál, fjöltyngi, fjölmenningu og önnur þau málefni sem tengjast móttöku og menntun fjöltyngdra barna.
Sérfræðingur í annars máls fræðum og fjölmenningu mun starfa gagngert á vegum MMS vegna þessa verkefnis og veita ráðgjöf og stuðning til sveitarfélaga og skóla með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Hlutverk Sambands íslenskra sveitarfélaga samkvæmt samkomulaginu er að gæta hagsmuna sveitarfélaga utan Reykjavíkur sem njóta þjónustu samkvæmt samningnum.