18 mars 2026

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Fyrri úthlutun Hönnunarsjóðs 2026

{image.Description}
Mynd: Hönnunarmiðstöð

Fyrri úthlutun Hönnunarsjóðs fór fram í hátíðarsal Grósku í morgun. 24 verkefni á sviði hönnunar og arkitektúrs hlutu styrki en alls bárust 142 umsóknir og sótt var um 242 milljónir. 24 verkefni hlutu styrki í þessari fyrri úthlutun ársins. Einnig var 16 ferðastyrkjum úthlutað til 14 verkefna. Alls var 37,9 milljónum króna úthlutað.

„Í hönnun og arkitektúr felast ekki aðeins fagurfræði heldur verðmæti, nýsköpun og framtíðarsýn. Ég er þeirrar skoðunar að framtíð verðmætasköpunar á Íslandi, og um leið velferðar þjóðarinnar, hvíli á því hvernig okkur mun takast að virkja hugvitið með markvissum hætti. Hönnun í öllu sínu litrófi er þar mikilvægur hlekkur. Hlekkur sem þarf að tengja betur við atvinnulífið svo tækifærunum fjölgi. Hönnun er ekki slaufan í lokin - heldur innihald, útlit og allt þar á milli. Virkjum fleiri hönnuði, og fyrr í ferlinu. Höldum fast í forvitni og frumkvæði. Þar er sköpunargleðin,“ segir Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

Mikil gróska í umsóknum

Styrkt verkefni spanna ólík svið og landsvæði. Allt frá því að endurskapa íslensku lopapeysuna og nýta afgangsgler til framleiðslu á ljósum til leturgerðar byggða á handskrift arkitekta fyrri ára.

Borghildur Sturludóttir formaður stjórnar úthlutaði styrkjunum fyrir hönd Hönnunarsjóðs og ávarpaði gesti. „Virkjum fagþekkingu og aðferðafræði hönnuða og arkitekta, þvert á samfélagið. Þannig má hafa víðtæk og jákvæð áhrif á þróun og lífsgæði okkar sem hér búa - til framtíðar.“

Sem dæmi um verkefni sem hlutu styrk í dag má nefna Tengja sem nýtir affall hitaveituvatns til upphitunar útihúsgagna í borginni. Með því að endurnýta heitt vatn og umframorku sköpum við hlýlegt umhverfi í miðjum vetrarhörkum. Verkefnið tengir saman sjálfbærni og þægindi í almannarýmum og umbreytir þannig ónýttta orku og býr til nýtilegt umhverfi fyrir borgarbúa. Annað verkefni sem hlaut styrk er Tvígrip sem leysir vanda handboltaleikmanna með þróun og hönnun á sérstakri hárspennu fyrir leikmenn. Tvígrip er fyrsta hárspennan sem er sérstaklega hönnuð fyrir notkun í handbolta og öðrum snerti-íþróttum.

Hér má lesa nánar um verkefnin sem hlutu styrk úr Hönnunarsjóði í fyrri úthlutun 2026.