18 mars 2026

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Vilja tryggja jafngilda þátttöku og endurskoða því Helsingforssamninginn

{image.Description}
Copyright Nordisk Råd og Nordisk Ministerråd

Logi Einarsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, sótti á mánudaginn fjarfund samstarfsráðherra Norðurlanda þar sem samþykkt var að koma á fót nefnd til endurskoðunar á Helsingforssamningnum. Upphaflegi samningurinn er frá árinu 1962 og myndar umgjörð fyrir formlega norræna samstarfið í Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni.

Hlutverk nefndarinnar verður að vinna breytingatillögur sem geta tryggt jafngilda þátttöku Færeyja, Grænlands og Álandseyja í Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni. Nefndin mun verða skipuð einum fulltrúa frá hverju landanna átta.

Nýlega var unnin úttekt á lagalegum atriðum sem hugsanleg breyting á samningnum kynni að hafa í för með sér og var hún afhent norrænu ríkisstjórnunum í febrúar síðastliðnum. Í kjölfarið samþykktu norrænu ríkisstjórnirnar að setja á fót nefnd til endurskoðunar á Helsingforssamningnum.

Nánari upplýsingar um fundinn á vef Norrænu ráðherranefndarinnar.