19 mars 2026

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Lög samþykkt á Alþingi sem fela í sér að greiðslur almannatrygginga fylgja launavísitölu

{image.Description}

Alþingi samþykkti í dag lög sem fela í sér að greiðslur almannatrygginga fylgja þróun launavísitölu sem Hagstofa Íslands reiknar út og birtir, í stað þess að taka mið af spá um launaþróun. Greiðslur almannatrygginga eru að stærstum hluta ellilífeyrir og greiðslur vegna örorku og endurhæfingar. Kveðið er á um að launavísitöluna í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.

„Í dag stígum við mikilvægt skref í átt að réttlátara samfélagi,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. „Markmiðið með breytingunum var að tryggja að fatlað fólk, öryrkjar og ellilífeyrisþegar drægjust ekki aftur úr öðrum þegar kæmi að kaupmætti. Það höfum við nú gert. Ég óska lífeyrisþegum og öllum sem þeim tengjast hjartanlega til hamingju.“

Árlegar launa og verðlagsbætur lífeyrisgreiðslna sem koma næst til framkvæmdar þann 1. janúar nk. munu taka mið af nýju lögunum.

Hvað er átt við með launavísitölu?

Launavísitala er gefin út af Hagstofu Íslands og er opinber mæling í samræmi við lög um launavísitölu. Mælingin er aðgengileg öllum.