20 mars 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Samkomulag undirritað við Grikkland vegna Uppbyggingarsjóðs EES
Samkomulag um nýtt framkvæmdatímabil Uppbyggingarsjóðs EES 2021–2028 milli Íslands, Liechtenstein og Noregs annars vegar og Grikklands hins vegar, var undirritað í dag.
Undirritunin markar upphaf formlegs samstarfs að nýju sjóðstímabili og lagður grunnur að verkefnum sem ætlað er að styðja við samfélagslega og efnahagslega þróun í Grikklandi á komandi árum.
Markmið Uppbyggingarsjóðs EES er að draga úr efnahagslegu og félagslegu misræmi innan Evrópska efnahagssvæðisins og styrkja tvíhliða tengsl milli gjafríkjanna þriggja og þeirra fimmtán aðildarríkja Evrópusambandsins sem njóta stuðnings úr sjóðnum. Með undirritun samkomulagsins hefst nú undirbúningur að útfærslu og úthlutun fjármagns úr sjóðnum til verkefna í Grikklandi á nýju tímabili.
Samstarf Íslands og Grikklands á vettvangi Uppbyggingarsjóðsins byggir á traustum grunni sem lagður var á fyrri sjóðstímabilum.