22 mars 2026

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Samráðsgátt: Drög að reglugerð um innra eftirlit

{image.Description}

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um innra eftirlit hjá þjónustuveitendum sem lúta eftirliti Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála.

Reglugerðin er sett með stoð í 11. gr. laga nr. 88/2021 og er ætlað að kveða á um almenna tilhögun innra eftirlits hjá þeim aðilum sem veita þjónustu á sviði velferðarmála og sæta eftirliti stofnunarinnar.

  • Markmið reglugerðarinnar er að tryggja að þeir aðilar sem bera ábyrgð á veitingu þjónustu samkvæmt lögum sinni markvissu innra eftirliti með starfsemi sinni.
  • Með reglugerðinni er jafnframt leitast við að skýra nánar tilhögun innra eftirlits, þar með talið framkvæmd þess og þær kröfur sem til þess eru gerðar.

Drögin eru birt í samráðsgátt stjórnvalda og gefst almenningi og hagsmunaaðilum kostur á að koma á framfæri umsögnum áður en endanleg ákvörðun verður tekin. Frestur til að senda inn umsögn er til 2. apríl nk.