23 mars 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Degi Norðurlanda er fagnað í dag
Dagur Norðurlanda er haldinn hátíðlegur í dag, mánudaginn 23. mars. Þá er fagnað elsta svæðisbundna pólitíska samstarfi heims, þ.e. milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs, Svíþjóðar, Færeyja, Grænlands og Álandseyja.
Af þessu tilefni verða ýmsir viðburðir haldnir víðsvegar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum í vikunni. Yfirskrift þeirra er lýðræði og ungt fólk og er markmiðið að kanna afstöðu ungs fólks til lýðræðis og framtíð þess.
Á Íslandi verður deginum fagnað með morgunfundi í Norræna húsinu í Reykjavík á morgun, þriðjudaginn 24. mars. Þar verður sjónum beint að forsendum lýðræðis á víðsjárverðum tímum.
Nánari upplýsingar um dag Norðurlanda og viðburði má nálgast á vef norræns samstarfs.