23 mars 2026

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Drög að reglugerð um kortlagningu óbyggðra víðerna kynnt til samráðs

{image.Description}
Horft frá Valahnúk í átt að Loðmundi og Sauðleysum

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um kortlagningu óbyggðra víðerna á Íslandi.

Reglugerðin er sett á grundvelli laga um náttúruvernd og miðar að því að skapa samræmda aðferðafræði við kortlagningu víðerna, byggða á skýrum og hlutlægum viðmiðum. Með henni er leitast við að bæta samræmi í skilgreiningu og afmörkun víðerna, en hingað til hefur skortur á sameiginlegum forsendur leitt til mismunandi nálgana við kortlagningu.

Í reglugerðardrögunum er kveðið á um að afmörkun víðerna taki meðal annars mið af áhrifum mannvirkja og annarrar landnotkunar á lífríki, náttúrulega ferla og upplifun fólks. Sérstök áhersla er lögð á svokölluð skerðingarsvæði í kringum mannvirki, þar sem umfang þeirra fer eftir eðli og sýnileika mannvirkja í landslagi.

Við mótun reglugerðarinnar var leitast við að finna jafnvægi þannig að hvorki væru sett of ströng né of rúm viðmið við afmörkun víðerna. Þá var meðal annars stuðst við faglega skýrslu um kortlagningu víðerna sem unnin var fyrir ráðuneytið.

Gert er ráð fyrir að Náttúrufræðistofnun annist kortlagningu víðerna, haldi utan um gögn og birti kort opinberlega. Kortin munu nýtast stjórnvöldum við stefnumótun og ákvarðanatöku, meðal annars í skipulagsmálum, mati á umhverfisáhrifum og verndun náttúru.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Með því að innleiða skýr og samræmd viðmið um kortlagningu óbyggðra víðerna erum við að styrkja grunn náttúruverndar á Íslandi. Með samræmdri aðferðarfræði um óbyggð víðerni tryggjum við betri og ábyrgari ákvarðanatöku í skipulagi og nýtingu lands, undirbyggjum stefnumótun á faglegum grunni og treystum stöðu óraskaðra svæða þar sem náttúran fær að þróast án verulegra áhrifa mannsins.“

Athygli er vakin á því að umsagnarfrestur í samráðsgátt stjórnvalda vegna draga að reglugerðinni er til 23. apríl.

Reglugerð um kortlagningu óbyggðra víðerna