24 mars 2026
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Styrkir til strandhreinsana árið 2026
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr verkefninu Strandhreinsun Íslands. Styrkirnir eru liður í aðgerðaáætlun umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins í plastmálefnum, Úr viðjum plastsins. Verkefnið Strandhreinsun Íslands, sem fyrst var komið á fót 2021, hefur verið framlengt til þriggja ára og nær nú yfir tímabilið 2026 - 2028. Markmiðið er að styðja við áframhaldandi hreinsun stranda og draga úr mengun í hafinu, en hreinleiki sjávar er Íslandi afar mikilvægur og strandhreinsanir gegna þar veigamiklu hlutverki.
Félagasamtök, áhugamannafélög, íþróttafélög og aðrir lögaðilar geta sótt um styrk til hreinsunar á strandlengju Íslands á árinu 2026.
Umsóknarfrestur er til 17. apríl 2026.
Umsóknir um styrkveitingar fara í gegnum vef Umhverfis- og orkustofnunar.
Reglur um styrkveitingar til verkefna sem felast í hreinsun á strandlengju Íslands
Nánari upplýsingar um átakið má finna á vefsíðunni strandhreinsun.is