25 mars 2026

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Skýrari rammi um vind og vernd til meðferðar á Alþingi

{image.Description}
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, mælir fyrir frumvarpi sem skýrir stöðu vindorku innan rammaáætlunar.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, mælti í gær fyrir frumvarpi á Alþingi sem er ætlað að skýra stöðu vindorku innan rammaáætlunar og tryggja viðeigandi verndun náttúruverðmæta sem Alþingi hefur talið ástæðu til að vernda.

Í frumvarpinu er lagt er til að vindorkunýting verði útilokuð á svæðum sem hafa verið friðlýst eða njóta sérstakrar verndar, svo sem á Ramsar-svæðum, svæðum á heimsminjaskrá UNESCO og B-hluta náttúruminjaskrár. Vindorkunýting mun í meginatriðum lúta sömu lögmálum innan rammaáætlunar og aðrir orkukostir. Þó er verkefnisstjórn gert að horfa sérstaklega til ákveðinna viðbótarþátta, m.a. til formlegrar afstöðu sveitarfélaga, atvinnuþróunar í viðkvæmum byggðum og til raforkuöryggis og samlegðar við uppbyggingu flutningskerfis raforku.

Hinn þáttur frumvarpsins snýr að verndarflokki rammaáætlunar. Markmiðið er að tryggja að þau svæði sem flokkuð eru í verndarflokk áætlunarinnar sæti í framhaldinu ítarlegri skoðun með það fyrir augum að fyrsti kostur verði að friðlýsa þau á grundvelli almennra friðlýsingarflokka náttúruverndarlaga fremur en að vera einvörðungu friðlýst gegn orkuvinnslu. 

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: 

„Það er löngu löngu tímabært að skapa skýrari leikreglur um vindorkuna. Fallið hefur verið alfarið frá áformum sem uppi voru áður en núverandi ríkisstjórn tók við um sérstaka flýtimeðferð vindorkugarða í nafni orkuskipta og kolefnishlutleysis. Í staðinn leggjum við til að vindurinn verði felldur með ótvíræðum hætti undir rammaáætlun, vindorkunýting verði bönnuð á viðkvæmum náttúrusvæðum en að afstaða sveitarfélaga og sjónarmið um atvinnu- og byggðaþróun og styrkingu flutningskerfis raforku vegi þungt við mat á vindorkukostum.

Samhliða þessu komum við verndarhlið rammaáætlunar í betri skorður. Staðreyndin er sú að engin svæði í verndarflokki rammaáætlunar hafa verið friðlýst með lögformlega réttum og bindandi hætti síðan lögin tóku gildi. Við leggjum til nýja nálgun: að eftir ítarlegt ferli rammaáætlunar sé verndað á grundvelli viðeigandi friðlýsingarflokka náttúruverndarlaga fremur en einvörðungu gegn orkuvinnslu.“