26 mars 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Alþjóðamál og öryggis- og varnarmál rædd í pólitísku samráði við Kanada

{image.Description}
Þátttakendur í samráðinu með Kanada samankomnir í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn í Reykjavík.

Ísland og Kanada höfðu í vikunni pólitískt samráð um alþjóða-, öryggis- og varnarmál, en sendinefndir ríkjanna funduðu í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Ný öryggis- og varnarmálastefna Íslands var lögð til kynningar í sérstökum umræðum um málaflokkinn og þá var þróun öryggismála á norðuslóðum og Norður Atlantshafi, viðbúnaður Atlantshafsbandalagsins og aukið tvíhliða samstarf ríkjanna sömuleiðis til umfjöllunar.

Þá heimsótti kanadíska sendinefndin öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli og fékk kynningu á þeirri varnartengdu starfsemi sem þar fer fram. Samráð þjóðanna um málaflokkinn var leitt af Jónasi G. Allanssyni, skrifstofustjóra varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, og Travis Morehen skrifstofustjóri í kanadíska varnarmálaráðuneytinu.

Þróun alþjóðamála var til umfjöllunar í samráði ríkjanna um alþjóðapólitísk málefni, þar sem stríðsátökin í Miðausturlöndum og innrásarstríð Rússlands í Úkraínu voru ofarlega á baugi. Þá voru málefni norðuslóða og samstarf Íslands og Kanada á vettvangi Norðurskautsráðsins sömuleiðis til umræðu, sem og áskoranir í alþjóðaviðskiptum, umbætur á stofnunum Sameinuðu þjóðanna, áherslur Íslands í mannréttindaráðinu og tvíhliða samstarf ríkjanna.

Hermann Ingólfsson, varaskrifstofustjóri skrifstofu alþjóðapólitískra málefna í utanríkisráðuneytinu, leiddi samráðið fyrir hönd Íslands og Gallit Dobner, skrifstofustjóri málefna norðurslóða, Evrasíu og Evrópu, fór fyrir sendinefnd Kanada.