26 mars 2026

/

Forsætisráðuneytið

JEF öryggis- og varnarsamstarfið beinir sjónum að Norðurslóðum

{image.Description}
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ræðir við fjölmiðla í Helsinki í dag.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í leiðtogafundi Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (Joint Expeditionary Force – JEF) í Helsinki ásamt leiðtogum Norðurlandanna, Eystrasaltsríkjanna og forsætisráðherrum Bretlands og Hollands. Auk leiðtoga JEF-ríkjanna ávarpaði forseti Úkraínu og forsætisráðherra Kanada fundinn.

Öryggis- og varnarmál Evrópu voru rædd á yfirgripsmiklum fundi þar sem m.a. var rætt um aðgerðir og aukinn viðbúnað JEF-ríkjanna gegn fjölþáttahernaði, þróun öryggismála á Norðurslóðum og í Norður-Atlantshafi, stuðning við Úkraínu auk aðgerða til að þrengja að skuggaflota Rússa og hlutverk ríkjasamstarfsins fram undan.

Á fundinum var jafnframt ákveðið að forsætisráðherra Íslands yrði gestgjafi leiðtogafundar JEF-ríkjanna á næsta ári. Leiðtogarnir ræddu stöðu mála í Úkraínu en JEF-ríkin hafa verið í fararbroddi þeirra sem veitt hafa Úkraínu pólitískan og fjárhagslegan stuðning í formi hergagna, búnaðar og þjálfunar. Þá var rætt um Atlantshafstengslin og upptakt að næsta leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Ankara í sumar. 

Ísland næsti gestgjafi JEF

„Ég fagna því að leiðtogarnir þiggi boð okkar um að halda næsta JEF-fund á Íslandi, í fyrsta sinn. Þannig leggjum við okkar lóð á vogarskálarnar í samstarfinu og beinum jafnframt sjónum að stöðu mála á Norðurslóðum, á okkar svæði,“ segir forsætisráðherra.

JEF er vettvangur ríkja sem er ætlað að efla samvinnu milli ríkja í Norður-Evrópu á grundvelli svæðisbundinna hagsmuna og styðja þannig við varnarviðbúnað Atlantshafsbandalagsins. JEF-ríkin hafa lagt aukna áherslu á að mæta fjölþáttaógnum með áherslu á eftirlit á hafi m.a. með neðansjávarinnviðum og eftirlit með skipum sem tilheyra skuggaflota Rússa.

„JEF-samstarfið er ákaflega mikilvægt fyrir Ísland, íslenska öryggis- og varnarhagsmuni og getu okkar til að hafa eftirlit með og bregðast við hugsanlegum ógnum í okkar nágrenni,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

„Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá aukna áherslu á Norður-Atlantshafið og Norðurslóðir sem fellur mjög vel að þeim áherslum sem birtast í nýsamþykktri stefnu í varnar- og öryggismálum,“ segir forsætisráðherra.

Sameiginleg yfirlýsing leiðtoga JEF-ríkjanna var samþykkt á fundinum í Helsinki í dag.