27 mars 2026
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Tekið á móti tilnefningum til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera
Fjársýslan auglýsir eftir tilnefningum til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026. Frestur til að senda inn tilnefningu rennur út mánudaginn 20. apríl.
Nýsköpunarverðlaun hins opinbera eru veitt til opinberra aðila sem hafa skarað fram úr í framþróun og umbreytingu á opinberri starfsemi og þjónustu. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á verkefnum og einstaklingum sem hafa innleitt nýjar lausnir, breytt verklagi eða nýtt innkaup og aðrar aðferðir markvisst til að bæta þjónustu og auka hagkvæmni í þágu samfélagsins.
Öllum er frjálst að senda inn tilnefningar. „Að hljóta tilnefningu til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera er þýðingarmikil viðurkenning sem stuðlar einnig að tækifærum til að miðla verðmætri reynslu og hvetur til áframhaldandi umbóta á opinberri starfsemi,“ segir á vef Fjársýslunnar.
Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn á Nýsköpunardegi hins opinbera 6. maí nk.
Senda tilnefningu til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera
Nánari upplýsingar um Nýsköpunarverðlaun hins opinbera og verðlaunahafa fyrri ára