27 mars 2026

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Vorúthlutun úr myndlistarsjóði 2026

{image.Description}
Styrkþegar fyrri úthlutunar Myndlistarsjóðs 2026. Mynd: Sigríður Marrow

Úthlutun úr myndlistarsjóði fór fram sl. miðvikudag. Alls var 45,6 milljónum króna úthlutað til 83 verkefna. Sigrún Inga Hrólfsdóttir, formaður myndlistarráðs afhenti styrkina en  alls bárust 257 umsóknir og sótt var um styrki fyrir 273 milljónir króna. 

Fyrsta úthlutun myndlistarsjóðs var árið 2013 og frá upphafi hafa sjóðnum borist tæplega 4300 umsóknir. Síðustu ár hefur 692 milljónum króna verið úthlutað úr sjóðnum. Næsti umsóknarfrestur verður í ágúst - sjá nánar hér.

Veittir voru styrkir í þremur flokkum:

  •  Undirbúningsstyrkir
  • Útgáfu- rannsóknar- og aðrir styrki
  • Sýningastyrkir

Undirbúningsstyrkir
51 umsókn barst
17 verkefni hlutu styrk fyrir alls kr. 7.300.000

Hæstu styrkina hlutu:
Textílfélag Íslands hlaut hæsta styrkinn, kr. 900.000 fyrir undirbúning á afmælisritinu Textílfélagið í hálfa öld.

Listasafnið á Akureyri hlaut kr. 700.000 fyrir undirbúning A! Gjörningahátíðar.

Nýlistasafnið hlaut kr. 700.000 til undirbúnings yfirlitssýningarinnar Etnó-estetík: Samtímalist frá Kalaallit Nunaat.

Jóna Hlíf Halldórsdóttir hlaut kr. 500.000 fyrir undirbúning yfirlitssýningar í Listasafninu á Akureyri.

Þorsteinn Eyfjörð Þórarinsson hlaut kr. 500.000 fyrir BLOOM: Upptökuferð á Vatnajökul.

12 önnur verkefni hlutu styrki að auki

Útgáfu-, rannsóknar- og aðrir styrkir
59 umsóknir bárust
20 verkefni hlutu styrk fyrir alls kr. 11.500.000

Hæstu styrkina hlutu:

Andreas Brunner hlaut kr. 1.000.000 fyrir útgáfu verksins Monograph Publication

Bjartur & Veröld hlaut kr. 1.000.000 fyrir útgáfu um Svavar Guðnason listmálara

Katrín Sigurðardóttir hlaut kr. 1.000.000 fyrir útgáfu á verkinu Óbyggð, Ellefu, Metamorphic og Namesake

Nýlistasafnið hlaut kr. 900.000 fyrir rannsókn og útgáfu á verkinu Gjörningar á Íslandi

Finnbogi Pétursson hlaut kr. 700.000 fyrir Skjálfti í Veðurstofu Íslands

Listasafn ASÍ hlaut kr. 700.000 fyrir útgáfu verksins Sigrid Valtingojer

Ragna Róbertsdóttir hlaut kr. 700.000 fyrir útgáfu verksins Recent Works

13 önnur verkefni hlutu styrk að auki.

Sýningarstyrkir
147 umsóknir bárust
46 verkefni hlutu styrk fyrir alls kr. 26.800.000

Verksmiðjan á Hjalteyri hlaut hæsta styrkinn, kr. 3.000.000 fyrir sýningaverkefni í Verksmiðjunni 2026

Kling & Bang hlaut kr. 2.600.000 fyrir þrjú sýningatímabil í Kling & Bang

Safnasafnið hlaut kr. 1.200.000 fyrir sýningar Safnasafnsins 2026, Úr safni og samtíma

Ars Longa - samtímalistasafn hlaut kr. 1.000.000 fyrir samsýninguna Rúllandi snjóbolti 19

ListaVestrið hlaut kr. 1.000.000 fyrir menningarhátíðina ListaVestrið á Flateyri

Gallerí Úthverfa hlaut kr. 1.000.000 fyrir sýningadagskrá 2026

Hamraborg Festival hlaut kr. 1.000.000 fyrir Hamraborg Festival 2026

Nýlistasafnið hlaut kr. 800.000 fyrir sýningu Open Group og einkasýningu Ívars Glóa Gunnarssonar

34 önnur verkefni hlutu styrk að auki.
Í matsnefnd sátu Birgir Snæbjörn Birgisson, Dorothée Maria Kirch og Æsa Sigurjónsdóttir úr myndlistarráði — gestir nefndarinnar voru Helga Páley Friðþjófsdóttir, Orri Jónsson og Þór Sigurþórsson.