31 mars 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið
100 rýma samningur við Heilsuvernd mun létta verulega á Landspítala
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Sigurður H. Helgason forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og Teitur Guðmundsson forstjóri Heilsuverndar undirrituðu fyrr í dag samning um rekstur og þjónustu í hjúkrunarrýmum að Urðarhvarfi 16.
Samningurinn tekur til þjónustu í 100 hjúkrunarrýmum fyrir einstaklinga með gilt færni- og heilsumat sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og bíða eftir varanlegri dvöl á hjúkrunarheimili. Þá er heimild innan samningsins til að auka rýmafjöldann með sveigjanlegum hætti til að geta betur mætt tímabundinni aukinni þörf með skömmum fyrirvara. Samningaviðræður hafa staðið yfir um nokkurt skeið og upphaflega stóð til að hefja starfsemi í maí á þessu ári en í kjölfar mikillar fjölgunar einstaklinga með færni- og heilsumats á Landspítala var opnunni flýtt.
Fyrstu þjónustuþegar hafa þegar flutt inn og á næstu dögum og vikum munu fleiri einstaklingar með gilt færni- og heilsumat flytja inn beint af Landspítala. Hjúkrunarrýmum á höfuðborgarsvæðinu ætti því að geta fjölgað um allt að 110 í sumar á grundvelli þessa samnings. Vonir standa til þess að samningurinn muni létta verulega á Landspítalanum og starfsfólki hans.
Urðarhvarf 16 er glæsileg átta hæða bygging og verða hjúkrunarrýmin staðsett á 2.-7. hæð. Rýmin eru rúmgóð og fallega innréttuð með eldhúskrók og baðherbergi í hverju herbergi í samræmi við kröfulýsingu og skipulag hjúkrunarheimila . Á hverri hæð eru sameiginlegar vistarverur, s.s. matsalur og setustofa með sjónvarpi. Á fyrstu hæð verður aðstaða til iðju- og sjúkraþjálfunar auk þess sem þar verður annar tengdur rekstur og þjónusta. Á áttundu hæð er sameiginleg aðstaða með stórum matsal, setustofu og hvíldaraðstöðu, þá eru á hæðinni stórar svalir þar sem hægt er að njóta stórbrotins útsýnis.
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra sagði við opnunina að um væri að ræða mjög mikilvægan áfanga í bættri þjónustu við eldra fólk. „Opnun Urðarhvarfs mun hafa jákvæð áhrif á heilbrigðiskerfið í heild en með tilkomu 100 nýrra rýma þar sem Landspítali hefur forgang bind ég vonir við að álag á starfsfólk spítalans minnki hraðar en vonir stóðu til. Fjölgun og endurnýjun eldri hjúkrunarrýma er lykilatriði í að tryggja örugga og góða þjónustu.“
„Þessi samningur er mikilvægt skref í að bæta flæði innan heilbrigðiskerfisins. Með þessum 100 nýju hjúkrunarrýmum verður hægt að taka á móti einstaklingum sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og þurfa áframhaldandi umönnun, sem mun létta verulega á álagi spítalans. Um leið er mikilvægt að samningurinn er sveigjanlegur og gerir okkur kleift að bregðast hratt við aukinni þörf ef og þegar hún skapast.“ Sigurður Helgi Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands
„Verkefnið í heild hefur gengið vonum framar, húsinu var skilað fyrr og innan kostnaðaráætlunar sem er frábær árangur. Því erum við hér í dag og þjónustan hafin. Allur aðbúnaður er fyrsta flokks og er mikil tilhlökkun í okkar fólki sem hefur staðið sig einstaklega vel í öllum undirbúningi fyrir opnun. Niðurstaðan er glæsilegt hús með útsýni til allra átta og þjónustu fyrir aldraða sem um munar. Þakkir til allra sem að hafa komið, með samstilltu átaki er allt hægt.“ segir Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar