31 mars 2026

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Forgangsraðað í þágu verðmætasköpunar

{image.Description}
Í fjármálaáætlun ríkistjórnarinnar 2027-2031 sem kynnt var í síðustu viku er lögð skýr áhersla á aukna verðmætasköpun í íslensku samfélagi í takti við nýja atvinnustefnu stjórnvalda.
Atvinnustefnan verður kynnt eftir páska, en þar munu málaflokkar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins leika lykilhlutverk.

„Með aukinni hæfni og tækniþróun getum við unnið betur úr þeim auðlindum og fjármagni sem við höfum og gripið fleiri tækifæri. Í fjármálaáætlun er lagður traustur grunnur að sjálfbærum vexti þar sem þekking og nýsköpun eru í leiðandi hlutverki. Á sama tíma er gætt að ábyrgri fjármálastjórn með aðhaldi og hagræðingu hjá stofnunum ríkisins. Áætlunin endurspeglar skýra framtíðarsýn: að fjárfesta í hæfni, hugviti og tækni til að tryggja aukna verðmætasköpun og velferð til framtíðar,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

Viðbótarfé til háskóla

Með áherslum fjármálaáætlunar er markvisst unnið að fjárfestingu í lykilstoðum þekkingarhagkerfisins. Framlög til háskóla eru aukin til að mæta vaxandi nemendafjölda og styðja við öflugt rannsóknar- og nýsköpunarstarf háskólanna. Samhliða er lögð áhersla á styrkingu háskólastigsins með viðbótarfjármagni til að efla alþjóðlega samkeppnishæfni Íslands, heilbrigðisþjónustu landsmanna og STEM-greinar*. Áfram verður unnið að því að styrkja stöðu háskólanna innan ramma ríkisfjármálanna.

Þá er áfram byggt undir kraftmikla nýsköpun með verulegum stuðningi við nýsköpunar- og rannsóknasjóði og áframhaldandi og vaxandi stuðningi við nýsköpunarfyrirtæki, sem gegna lykilhlutverki í að skapa ný störf og verðmæti til framtíðar. Þannig mun stuðningurinn við endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar aukast á tímabili fjármálaáætlunar, samhliða væntingum um aukna fjárfestingu í þekkingarfyrirtækjum landsins. Um leið verður hugað að stuðningsumhverfi nýsköpunar í heild sinni.


Áhersla á íslensku, máltækni og gervigreind


Einnig er sérstök áhersla lögð á uppbyggingu máltækni og gervigreindar með því að leggja til í fyrsta sinn reglubundin fjárframlög á tímabili áætlunarinnar sem munu styrkja stöðu íslenskrar tungu í stafrænum heimi og skapa ný tækifæri í tækniþróun um leið og tæknibreytingum er mætt af ábyrgð og öryggi.

Þá er grunnur lagður að nýjum Svarta kassa Þjóðleikhússins í fjármálaáætluninni, sem fyrst var greint frá á Menningarnótt í fyrra. Auknum fjármunum er varið í stuðning við fjölmiðla í samræmi við aðgerðaáætlun sem kynnt var í desember síðastliðnum. Áhersla er á að efla íslenska tungu, meðal annars með átaki í útgáfu barna- og ungmennabóka á íslensku. Fjölgun listamannalauna eru full fjármögnuð sem tryggir að úthlutunarmánuðum mun fjölga í skrefum á því tímabili.

Nánari upplýsingar um fjármálaáætlun 2027-2031 má finna á vef Stjórnarráðsins. 

* STEM er alþjóðleg skammstöfun og stendur fyrir fræðagreinar á sviði verkfræði, stærðfræði, raunvísinda og náttúruvísinda