31 mars 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Opið fyrir umsóknir úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífsins til 11. maí
Utanríkisráðuneytið tekur nú á móti umsóknum um styrki til Heimsmarkmiðasjóðs atvinnulífsins um þróunarsamvinnu vegna samstarfsverkefna í þróunarríkjum, en sjóðurinn tekur við umsóknum tvisvar á ári.
Umsóknarfrestur er til 11. maí nk., en hámarksstyrkur nemur 30 m.kr. á þriggja ára tímabili.
Verkefni skulu jafnan styðja við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæran hagvöxt og mannsæmandi atvinnutækifæri í þróunarríkjum, auk þess að hafa tengingu við önnur heimsmarkmið sem Ísland leggur áherslu á í þróunarsamvinnu. Að þessu sinni er sérstaklega óskað eftir umsóknum vegna verkefna með rík umhverfis- og loftslagsáhrif, án þess þó að önnur verkefni verði útilokuð. Auk þess verður lögð áhersla á stuðning við verkefni sem fela í sér tækifæri til frekari fjárfestinga annarra aðila.
Nánari upplýsingar er að finna í verklagsreglum sjóðsins.
Öllum umsóknum skal skila í tölvupósti á [email protected], þar sem fyrirspurnum er sömuleiðis svarað.
Þá er vakin athygli á því að Þróunarfræ, sem er forkönnunarstyrkur til ungra frumkvöðlafyrirtækja og einstaklinga vegna þróunarsamvinnuverkefna, tekur við umsóknum allt árið um kring. Umsóknum skal skila rafrænt í umsóknarkerfi Rannís þar sem þær eru teknar fyrir og úthlutun tilkynnt að lágmarki tvisvar á ári.