01 apríl 2026
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur
Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 1. apríl sl. Atvinnuvegaráðuneytinu bárust 88 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 11.
Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum Afurð og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.
Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð sem við lok tilboðsfrests var 428 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 260 kr./ltr.
- Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 11.
- Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 88.
- Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði var 31.
- Ekkert sölutilboð var yfir jafnvægisverði.
- Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 624.608 lítrar
- Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 3.494.900 lítrar
- Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 624.608 lítrar að andvirði 162.398.080,- kr.
- Seljendur með tilboð á jafnvægisverði eða lægra eru 11 talsins og selja 100% af sínu framboðna magni.
- Kaupendur með tilboð á jafnvægisverði eða hærra eru 57 talsins og fá 26% af eftirspurðu magni í sinn hlut.
- Af kauptilboðum eru 3 sem fá úthlutun úr forgangspotti nýliða.
Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. Atvinnuvegaráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.