01 apríl 2026

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Tillögur um tekjuráðstafanir á árinu 2027 munu koma fram í frumvarpi til fjárlaga

{image.Description}

*Fréttin var uppfærð 12. maí 2026 þar sem „Nasdaq verðbréfamiðstöð“ var skipt út fyrir „Kauphöll“.

Að gefnu tilefni og að höfðu samráði við Kauphöllina vill fjármála- og efnahagsráðuneytið árétta að samkvæmt venju er í fjármálaáætlun gert ráð fyrir ýmsum tekjuráðstöfunum sem eiga að skila viðbótartekjum í ríkissjóð. Þessar ráðstafanir eru allar á hugmyndastigi og bíða útfærslu og samþykkis, þar með talið þinglegrar meðferðar. 

Í tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun 2027-2031 sem lögð hefur verið fram liggur ekki annað fyrir um auknar tekjur frá fyrirtækjum á fjármálamarkaði en að áform séu uppi um að „afla viðbótarskatttekna frá fyrirtækjum í fjármálageiranum“.


Endanlegar tillögur um tekjuráðstafanir á árinu 2027 munu koma fram í frumvarpi til fjárlaga í haust. Þær tillögur kunna síðan að breytast í þinglegri meðferð fjárlagafrumvarpsins. Ekki liggja fyrir samþykktar fjárhæðir viðbótartekna sem lagt verður til að aflað verði frá fyrirtækjum á fjármálamarkaði og ekki heldur leiðir til að afla þeirra. Samþykktarferli vegna þessara atriða er ekki heldur farið af stað.