01 apríl 2026
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Úthlutunarreglur MSNM 2026 - 2027: Hækkun framfærslu og frítekjumarks
Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur sett nýjar úthlutunarreglur Menntasjóðs námsmanna fyrir skólaárið 2026-2027. Uppfærðar úthlutunarreglur eru birtar árlega 1. apríl í Stjórnartíðindum.
„Menntasjóður námsmanna á að vera félagslegur jöfnunarsjóður sem tryggir jafnt aðgengi að námi óháð efnahag og búsetu. Með þessum breytingum hækkum við meðal annars framfærslu vegna húsnæðiskostnaðar og aukum sveigjanleika við endurgreiðslu hárra lána. Þetta er í takt við þær breytingar sem samþykktar voru á sjóðnum síðastliðið haust um að námsmenn fá nú styrk á hverri önn og afborganir hefjast seinna. Jafnframt er hafin vinna við frekari umbætur á sjóðnum. Okkur hafa borist góðar ábendingar og raungerast sumar þeirra í þessum breytingum sem við kynnum í dag en aðrar verða skoðaðar sérstaklega í tengslum við yfirstandandi vinnu. Ég vil þakka stúdentum fyrir sitt innlegg og mun kalla eftir þeirra viðbrögðum í vor þegar sú vinna fer í samráð,“ segir Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Brugðist við ábendingum stúdenta
Viðbótarlán vegna húsnæðiskostnaðar hækkar um 22,13%. Slík lán stóðu í stað á milli skólaáranna 2022-2023 þegar grunnframfærsla hækkaði um 18%. Stúdentar hafa bent á þetta misræmi og að íþyngjandi húsnæðiskostnaður sé steinn í götu námsmanna þar sem öruggt húsnæði sé grundvöllur þess að stúdentar geti stundað nám. Með hækkuninni er brugðist við þessu misræmi. Hækkunin er samtala fyrrnefndra 18% að viðbættum 3,5 % hækkun í samræmi við þjóðhagsspá Hagstofunnar.
Sem dæmi má nefna að einstaklingur fær nú 120.311 kr. á mánuði í lán vegna húsnæðis en fékk áður 98.511 kr. Sjá nánar hvernig breytingin mun hafa áhrif í töflunni hér fyrir neðan.
Frítekjumark og framfærsla hækka
Þá hækkar framfærsla námsmanna um 5,5 % til að mæta verðlagshækkunum. Frítekjumark hækkar um 300.000 kr. sem er rúmlega 180.000 kr. umfram hækkun á neysluvísitölu milli ára. Með nýju reglunum geta lánþegar Menntasjóðsins haft 2,6 milljónir króna í árstekjur án þess að til tekjuskerðingar komi. Ef veitt eru makalán hækkar sameiginlegt frítekjumark námsmanns og maka í 3,9 milljónir króna.
Helstu breytingar sem gerðar eru á lánareglum fyrir námsárið 2026-2027 eru eftirfarandi:
• Lán með tilliti til húsnæðis hækkar um 22,13%.
• Framfærsla námsmanna hækkar um 5,5% á milli skólaára.
• Frítekjumark hækkar um 300.000 kr.
• Endurgreiðslutími á hæstu lánunum lengist úr 25 árum í 40 til að létta undir greiðslubyrði.
• Nokkur ákvæði reglnanna eru uppfærð til nánari skýringa, orðalagi er breytt til einföldunar og samræmis við ákvæði laga nr. 70/2025.