03 apríl 2026
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Nýr menningarsamningur undirritaður á Akureyri
Í gær, skírdag, undirrituðu Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, endurnýjaðan menningarsamning milli Akureyrarbæjar og ríkisins.
Megintilgangur samningsins er áframhaldandi samstarf um þróun og starfsemi listasafns, atvinnuleikhúss, sinfóníuhljómsveitar og menningarhúss á Akureyri. Samningurinn er að þessu sinni jafnframt tengdur beint við þá stefnu að Akureyri verði formlega svæðisborg á Íslandi. Litið er á menningarstarf sem mikilvæga innviði í samfélaginu og með því að efla þá vilja ríki og bær stuðla að þróun og uppbyggingu Akureyrar sem svæðisborgar. Samstarfið eykur þannig aðgengi að menningu fyrir alla, óháð búsetu og skapar atvinnutækifæri fyrir listafólk sem vill gera Akureyri að sínum starfsvettvangi.
Samningurinn gildir til næstu fjögurra ára og er heildarframlag ríkisins til verkefna hans um 1.300 m.kr. en heildarkostnaður er áætlaður um 4.300 m.kr. og hlutur ríkisins því um 30%.
„Ég er mjög ánægð með þennan nýja samning og ljóst að menningarmálaráðherra leggur hér þung lóð á vogarskálar þess að efla Akureyri sem svæðisborg en hugmyndin um hana er að mínu mati óhugsandi án þess að við gerum ráð fyrir öflugri atvinnustarfsemi í menningu og listum. Við þurfum um leið að skapa okkur sérstöðu og breikka framboðið á þessu sviði á Íslandi og efla sköpunarkraftinn okkur öllum til heilla,“ segir Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri.
Blómleg menning um páskana
Logi Einarsson segir það vera eina af stefnuáherslum ríkisstjórnarinnar að auka aðgengi þjóðarinnar að menningu óháð búsetu og efnahag. Í því felist aukin tækifæri til þátttöku í skapandi starfi, til að sækja menningarviðburði og starfa við menningu.
„Menning er límið í hverju samfélagi og við vitum að hún skiptir miklu máli þegar fólk ákveður hvar það vill búa. Á Akureyri er blómlegt menningarlíf og þar eru menningarinnviðir og stofnanir til staðar sem standa þarf vörð um og efla. Nú um páskana kennir ýmissa grasa í menningunni á Akureyri og er tilvalið að njóta þess milli skíðaferða. Eins og oft áður er margt um manninn um páskana á Akureyri vegna góðrar skíðaaðstöðu en menningaraðstaðan er einnig frábær. Í gær fór ég á tvenna tónleika. Fyrst sá ég Atla Örvars og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í Hofi, sem var algjörlega magnað og um kvöldið skellti ég mér á frábæra tónleika með Rakel á nýja tónleikastaðnum á Leyni. Hér eru líka í boði listasýningar í Listasafni Akureyrar og víðar að ógleymdum söngleiknum Birtíngi hjá Leikfélagi Akureyrar,“ segir Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.