09 apríl 2026

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Drög að stefnu um opin og ábyrg vísindi í samráðsgátt

{image.Description}

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur birt drög að stefnu um opin og ábyrg vísindi í samráðsgátt stjórnvalda. Um er að ræða fyrstu heildstæðu stefnu Íslands á þessu sviði. Stefnan leggur áherslu á að stuðla að öflugu vísindastarfi, sterkum innviðum og samstarfi til að byggja upp þekkingar- og nýsköpunardrifið samfélag þar sem hugað er að ábyrgð og öryggi.

 

Betri nýting þekkingar

 


Stefnudrögin byggja á þeirri meginforsenduað þekking sem verður til í opinberlega fjármögnuðu vísindastarfi eigi að vera aðgengileg öllum. Með opinni miðlun rannsóknaniðurstaðna, -gagna og -aðferða er stuðlað að auknu gagnsæi, betri nýtingu opinbers fjár, meiri endurnýtanleika og auknum samfélagslegum ávinningi. Jafnframt er lögð rík áhersla á að opin miðlunhaldist ávallt í hendur við ábyrgð, öryggi, siðferði, persónuvernd og vernd hugverkaréttinda.

Opin vísindi



Stefnan skiptist í tvo hluta, annars vegar opin vísindi og hins vegar ábyrg vísindi. Í opnum vísindum er lögð áhersla á opinn aðgang að fræðilegum birtingum, opin gögn, opnar rannsóknaaðferðir, opin kennslugögn, opna rannsóknainnviði, borgaravísindi og vísindamiðlun.
 

Stefna stjórnvalda um opin vísindi byggir á fjórum meginviðmiðum:

 

  • „Eins opin og mögulegt er, eins lokuð og nauðsyn krefur.“
    Rannsóknarafurðir skulu almennt vera opnar, en þó með réttlætanlegum og gagnsæjum undantekningum s.s. vegna persónuupplýsinga, hugverkaréttinda, viðskiptaleyndarmála eða öryggis

  • Fylgja FAIR reglunum.*
    Gögn og aðrir stafrænir hlutir skulu vera finnanleg, aðgengileg, gagnvirk og endurnýtanleg.

  • Samfélagslegur ávinningur og þátttaka.
    Opin vísindi skulu þjóna samfélaginu, styrkja almenna þátttöku í vísindastarfi, réttlæta opinberar fjárfestingar og styðja lýðræðislega umræðu.

  • Samræmi við aðrar stefnur og aðgerðaáætlanir.
    Áhersla á opin vísindi og aðgerðir þeim tengdar taka mið af stefnu stjórnvalda um vísindi og nýsköpun, fyrirhugaðri gagnastefnu Íslands og atvinnustefnu og tengdum aðgerðaáætlunum.

 

Ábyrg vísindi


Stefnumótun um ábyrg vísindi er ætlað að stuðla að heilindum í ástundun rannsókna með siðferðileg og fagleg viðmið að leiðarljósi sem og að öryggi rannsóknaumhverfisins og ábyrgri alþjóðavæðingu. Þá er henni ætlað að vernda akademískt frelsi og lágmarka áhættu með markvissum öryggisráðstöfunum.

 

Markmið stefnu stjórnvalda um ábyrg vísindi eru að:

 

  • Tryggja öryggi rannsóknaumhverfisins með því að vernda rannsakendur, rannsókna- og tækniinnnviði, gögn og hugverk.

  • Stuðla að ábyrgri alþjóðavæðingu með því að tryggja að alþjóðlegt samstarf byggi á sameiginlegum gildum, gagnsæi, gagnkvæmu trausti og traustum samningum.

  • Vernda akademískt frelsi, sjálfstæði rannsakenda, frumkvöðla og stofnana og styðja opin og örugg vísindi.

  • Lágmarka áhættu með markvissum öryggisráðstöfunum án þess að kæfa framúrskarandi rannsóknir eða forðast viðkvæm viðfangsefni rannsókna.

Stefnan er unnin í samræmi við stefnu stjórnvalda um vísindi, tækniþróun og nýsköpun til 2035 og byggir meðal annars á tilmælum UNESCO um opin vísindi og leiðbeiningum Evrópusambandsins um traustar rannsóknir. Gert er ráð fyrir að stefnan gildi á tímabilinu 2026–2029 og að framkvæmd hennar verði fylgt eftir með markvissum mælikvörðum og mati á áhrifum. Ráðuneytið hvetur háskóla, rannsóknastofnanir, vísindafólk, aðra hagaðila og almenning til að kynna sér drögin og senda inn umsagnir í samráðsgátt stjórnvalda fyrir 28. apríl næstkomandi.

*FAIR - Findable, Accessible, Interoperable, and Reusable)