09 apríl 2026

/

Dómsmálaráðuneytið

Freyr Gígja Gunnarsson nýr upplýsingafulltrúi hjá dómsmálaráðuneytinu

{image.Description}
Freyr Gígja Gunnarsson

Freyr Gígja Gunnarsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins til eins árs. Hann mun hefja störf 13. apríl nk.

Freyr Gígja hefur rúmlega tveggja áratuga reynslu úr fjölmiðlum. Fyrst sem blaðamaður á Fréttablaðinu en síðan sem fréttamaður á RÚV frá árinu 2012. Síðustu ár hefur hann verið einn af umsjónarmönnum Spegilsins. Hann er með B.A. próf í almennri trúabragðafræði frá guðfræðideild Háskóla Íslands.