09 apríl 2026

/

Innviðaráðuneytið

Reglugerð um strandveiðar: Umsóknir um strandveiðar heimilaðar meðan björgunarbúnaður er skoðaður

{image.Description}

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur gert breytingu á reglugerð um strandveiðar m.a. til að bregðast við þeirri stöðu sem skapast hefur eftir að mörg skip misstu haffærisskírteini þegar skoðanir á björgunarbúnaði þeirra voru ógiltar.

Tímabundið ákvæði verður í gildi fyrir strandveiðivertíðina 2026 sem heimilar Fiskistofu að taka við umsóknum um strandveiðileyfi þótt haffærisskírteini liggi ekki fyrir við skil á umsókn, sem skal berast í seinasta lagi mið. 15. apríl nk. Endanlegt leyfi verður þó ekki veitt fyrr en skilyrði um haffærisskírteini eru uppfyllt sem og önnur skilyrði reglugerðarinnar. 

Með þessum hætti geta skip sem misst hafa haffærisskírteini vegna ógildingar á björgunarbúnaði sótt um og fengið leyfi þegar fullnægjandi skoðun hefur farið fram og skip fengið haffærnisskírteini. 

Markmiðið er því að koma til móts við strandveiðisjómenn og tryggja að umsækjendur missi ekki af möguleika til strandveiða í sumar vegna aðstæðna sem umsækjendur höfðu ekki stjórn á. Búast má við talsverðu álagi og töfum í skoðunarferli á björgunarbúnaði til að öðlast haffærisskírteini að nýju. Þrátt fyrir að skip hafi uppfyllt að öðru leyti skilyrði til strandveiða voru mörg þeirra því í hættu á að ná ekki að uppfylla formskilyrði innan umsóknarfrests. 

Umsóknarfrestur til strandveiða er til og með mið. 15. apríl. Umsækjendur þurfa að skila umsóknum innan frests, en nú er það hægt óháð stöðu haffærisskírteina við umsókn fyrir þá sem þess þurfa.