09 apríl 2026

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Reglugerð um upplýsingakerfi vegna flutnings á úrgangi á milli landa til kynningar í Samráðsgátt

{image.Description}

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að breytingu á reglugerð um flutning úrgangs á milli landa, nr. 822/2010.

Tilefni breytingarinnar er ákvörðun Evrópusambandsins (ESB) um að taka upp stafrænt, miðlægt kerfi fyrir skipti á gögnum, upplýsingum og skjölum sem varða flutning úrgangs á milli landa frá og með 21. maí nk.  Er það gert til einföldunar, aukinnar skilvirkni og til að draga úr stjórnsýslubyrði og kostnaði.  Gert er ráð fyrir að kerfið eigi bæði við um tilkynningarskyldan flutning sem háður er samþykki yfirvalda og flutning á úrgangi til endurnýtingar.

Hluti þess úrgangs sem til fellur á Íslandi á ári hverju er fluttur til meðhöndlunar í öðrum ríkjum Evrópu, eða með viðkomu þar, og er í því ljósi nauðsynlegt að gera ráðstafanir sem miða að því að koma stafræna kerfinu í notkun hér á landi á sama tíma og í aðildarríkjum ESB.

Athygli er vakin á því að frestur til að senda umsögn í samráðsgátt er til 22. apríl nk.

Breyting á reglugerð um flutning úrgangs á milli landa