10 apríl 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Föstudagspóstur 10. apríl 2026
Heil og sæl,
Föstudagspósturinn er snúinn aftur úr páskafríi og við hefjum yfirferðina á dagskrá Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra.
Ráðherra hefur verið afkastamikill penni síðustu vikur. Grein ráðherra, Þeir fiska sem róa, var birt í Vísi þann 30. mars.
Greinin Tvennt getur verið rétt á sama tíma var birt í Vísi þann 1. apríl
Og greinin Er til annað líf? var birt í Morgunblaðinu þann 2. apríl.
Þorgerður Katrín var meðal þeirra 18 utanríkisráðherra sem birtu sameiginlega yfirlýsingu vegna þess alvarlega ástands sem hefur skapast í Líbanon vegna hernaðaraðgerða Ísraels á undanförnum vikum.
Iceland joins Belgium, Croatia, Estonia, Finland, Italy, Ireland, Latvia, Luxembourg, Moldova, Norway, Poland, San Marino, Spain & Sweden in strongly condemning Hezbollah attacks against Israel & urging Israel to fully respect Lebanon’s sovereignty and territorial integrity. https://t.co/HmCM7WtBVe
— MFA Iceland 🇮🇸 (@MFAIceland) April 1, 2026
Utanríkisráðherra átti símafund með Christopher Landau varautanríkisráðherra Bandaríkjanna þann 2. apríl. Þar voru pólitísk samskipti ríkjanna, gjöfult varnarsamstarf þeirra og viðskiptamál í brennidepli. Þá var staða alþjóðamála sömuleiðis til umræðu, m.a. sú alvarlega staða sem blasir við í Mið-Austurlöndum, þ.m.t. í Íran, og málefni Úkraínu. Þorgerður Katrín undirstrikaði mikilvægi samskipta ríkjanna í öryggis- og varnarmálum, en einnig á sviði viðskipta og fjárfestinga.
Fastanefnd Íslands gagnvart mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna lauk þann 31. mars 61. fundarlotu sinni og er um fjórðu lotu ráðsins að ræða síðan Ísland var kosið til setu í ráðinu. Staða mannréttinda í Mið-Austurlöndum, Úkraínu, Súdan og Suður-Súdan bar hæst í umræðum veturlotunnar.
Við lok vetrarlotunnar voru 38 ályktanir afgreiddar og kallað til atkvæðagreiðslu um tíu þeirra, en 28 ályktanir voru samþykktar samhljóða. Ísland stóð einnig fyrir tveimur viðburðum í lotunni sem fjölluðu um málefni barna, en vetrarlotan er oft kölluð barnalotan þar sem ályktanir og umræður um málefni barna eru í forgrunni.
Helsinki
Harald Aspelund, sendiherra okkar í Finnlandi, og Ásthildur Jónsdóttir sóttu Álandseyjar heim í boði lögþings Álandseyja. Í heimsókn sinni sótti fundaði hann með Jörgen Pettersson, forseta Álandseyjaþings, Katrin Sjögren, formanni heimastjórnar Álandseyja, og John Eriksson, skrifstofustjóra hjá heimastjórninni. Einnig heimsótti sendiherra ýmsar stofnanir og listasöfn á eyjunum.
Kampala
Starfsfólk sendiráðsins okkar í Kampala tóku vel á móti gestum frá Öryrkjabandalagi Íslands, Mubende Women with Disabilities Association (MUDIWA) og fulltrúum þjálfunar- og þróunarfyrirtækisins Skref fyrir skref. Samstarfshópurinn hlaut nýliðastyrk frá utanríkisráðuneytinu sem fyrsta skref í mati á því hvernig efla megi konur og stúlkur með fötlun í Úganda.
Kaupmannahöfn
Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn var meðal styrktaraðila útgáfuhófs tónlistarinnar úr sjónvarpsseríunni Dönsku konunni, í leikstjórn Benedikts Erlingssonar, sem haldin var í Empire Bio í Kaupmannahöfn á miðvikudaginn. Útgáfufélagið Crunchy Frog stóð fyrir fögnuðinum.
Árleg samkoma ræðismanna Íslands í Danmörku var haldin í embættisbústað sendiráðsins 27. mars s.l. Við það tækifæri voru tveir kjörræðismenn sem létu af störfum þann dag heiðraðir og þakkað fyrir áratuga störf í þágu lands og þjóðar.
Lilongwe
Erla Hlín Hjálmarsdóttir, varamaður forstöðumanns sendiráðs Íslands í Lilongwe, veitti viðurkenningarskjöl vegna námskeið um kynjajafnrétti og baráttu gegn kynbundnu stafrænuofbeldi sem var skipulagt af GenHub Malawi, GRÓ - þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, og Háskóla Íslands.
Madríd
Kristján Andri Stefánsson, sendiherra okkar í Madríd, hélt fyrirlestur í lagadeild Háskólans í Málaga þar sem hann fjallaði um Ísland og samskipti þess við Evrópusambandið. Einnig fundaði hann með Francisco de la Torre, borgarstjóra Málaga.
View this post on Instagram
A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)
View this post on Instagram
A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)
Osló
Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, var gestur Högna Kristjánssonar, sendiherra Íslands, í hádegisverði með sendiherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja.
París
Bókin Duft eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur kom út í franskri þýðingu fyrir stuttu síðan hjá hinu virta bókaútgáfufélagi Grasset í þýðingu Hadrien Chalard. Af því tilefni bauð María Mjöll Jónsdóttir, sendiherra okkar í París, í útgáfuhóf í embættisbústaðnum í París þar sem aðstaðstendur bókarinnar, blaðamenn, bóksalar og fleiri góðir gestir komu saman.
Tókýó
Sendiráðið okkar í Tókýó studdi við heimsókn Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra, sem sótti Japan heim í byrjun vikunnar.
Azuma Foods "Osushiyja Nashin" hlaut verðlaun sendiráðs Íslands í Tókýó í sjávarréttarkeppninni National Processed Seafood Quality Competition. Verðlaunin voru veitt til Azuma Foods sem notar hágæða íslenska síld í vörunni sinni og sameinar þannig íslenskar og japanskar matarhefðir.
Varsjá
Sendiráðið okkar í Varsjá studdi við opinbera heimsókn Þórunnar Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis, fyrir stuttu síðan.
Fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York
Ísland tók þátt í nefndarfundi í tengslum við samning Sameinuðu þjóðanna um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja (BBNJ-samningurinn).
Iceland 🇮🇸 actively participated at BBNJ PrepCom III 🇺🇳 with an emphasis on constructive and collaborative engagement. As a long-standing proponent of the law of the sea, Iceland looks forward to the convening of the first meeting of the COP #BBNJ, #HighSeasTreaty #PrepCom3 pic.twitter.com/Fwdj891xyc
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) April 4, 2026
Meira verður það ekki í bili,
kveðja, upplýsingadeild.