10 apríl 2026
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Ráðgefandi fagnefnd um mat á rannsóknar- og þróunarverkefnum
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur, í samráði við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, sett á fót sérstaka ráðgefandi fagnefnd við mat Rannís á rannsóknar- og þróunarverkefnum. Skipunin er í samræmi við 8. gr. laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009. Ásamt fulltrúum ráðherranna tveggja situr fulltrúi Samtaka atvinnulífsins í fagnefndinni. Nefndin hóf formlega störf í gær þegar fyrsti fundur fór fram.
Hlutverk nefndarinnar er að veita Rannís ráðgefandi álit um einstök álitamál sem upp koma við mat Rannís á rannsóknar- og þróunarverkefnum samkvæmt lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009 og reglugerð, nr. 758/2011. Nefndin fjallar um mál sem Rannís vísar til hennar og er ætlað að meta fagleg atriði umsókna, þ.m.t. hvort verkefni teljist fela í sér rannsóknir og þróun í skilningi fyrrnefndra laga og reglugerðar. Álit nefndarinnar eru ráðgefandi og endanleg ákvörðun um afgreiðslu umsókna er í höndum Rannís.
Ráðgefandi fagnefnd er þannig skipuð:
Pétur Örn Pálmarsson, fulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytisins og formaður hópsins,
Kolbrún Hrafnkelsdóttir, fulltrúi menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins,
Erla Tinna Stefánsdóttir, fulltrúi Samtaka atvinnulífsins.