10 apríl 2026
/
Forsætisráðuneytið
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Atvinnuvegaráðuneytið
Tímabundnar efnahagsaðgerðir til að hemja verðbólgu
Ríkisstjórnin samþykkti í dag tímabundnar efnahagsaðgerðir til að hemja verðbólgu og bregðast við verðhækkunum á olíu vegna stríðsátaka við Persaflóa. Markmið aðgerðanna er að fletja út kúfinn vegna þessara hækkana og draga úr áhrifum þeirra á íslensk heimili og fyrirtæki.
Aðgerðirnar eru tímabundnar á meðan mikil óvissa er um þróun mála sem gefur stjórnvöldum færi á að móta langtímaaðgerðir til að bregðast við breyttri stöðu. Með aðgerðunum vilja stjórnvöld leggja sitt af mörkum og setja fordæmi fyrir atvinnulífið til að stemma stigu við verðhækkunum.
Aðgerðirnar eru eftirfarandi:
1. Lækkun á dælu
-
Með tímabundinni lækkun virðisaukaskatts úr 24% í 11% á eldsneyti af dælu
2. Vöktun á verðlagningu
-
Með tímabundnu lagaákvæði sem skyldar söluaðila til að skila verðlækkun að fullu til neytenda og felur Samkeppniseftirlitinu að vakta að þetta sé gert
-
Með því að styrkja verðlagseftirlit ASÍ um 15 milljónir til að hafa sérstakt eftirlit í sumar með verðlagningu á öllum helstu tegundum dagvöru og þjónustu
3. Fjölgun hleðslustöðva um land allt
-
Með 500 milljóna átaki strax í sumar til að fjölga hleðslustöðvum við fjölbýlishús og gististaði og „loka hleðslugatinu“ hringinn í kringum landið
Gert er ráð fyrir að aðgerðirnar taki gildi 1. maí og renni út 31. ágúst á þessu ári. Lagafrumvarp um lækkun virðisaukaskatts á dælu og vöktun á verðlagningu verður lagt fram á Alþingi í næstu viku. Fjölgun hleðslustöðva verður styrkt með framlögum úr loftslags- og orkusjóði sem verða kynnt á næstu dögum.