10 apríl 2026

/

Dómsmálaráðuneytið

Tvö embætti dómara við Landsrétt laus til umsóknar

{image.Description}

Dagana 27. mars og 1. apríl 2026 birti ráðuneytið í Lögbirtingablaði auglýsingar um embætti dómara við Landsrétt sem laus eru til umsóknar.

Ráðuneytið telur rétt að vekja athygli á því að um tvö embætti er að ræða með mismunandi skipunartíma, annars vegar frá 5. október 2026 og hins vegar frá 1. september 2026.

Umsóknarfrestur um fyrrnefnda embættið er til og með 13. apríl næstkomandi og um hið síðarnefnda til og með 15. apríl næstkomandi.