10 apríl 2026
/
Dómsmálaráðuneytið
Umsóknarfrestur framlengdur um embætti sýslumanns
Dómsmálaráðuneytið hefur framlengt umsóknarfrest um embætti sýslumanns til og með 21. apríl nk. Embættið verður stofnað 1. janúar 2027 við sameiningu núverandi níu sýslumannsembætta, í kjölfar samþykktar Alþingis á frumvarpi dómsmálaráðherra um sameinað embætti sýslumanns. Ekki er gert ráð fyrir að sýslumaður hafi aðsetur á höfuðborgarsvæðinu.
Leiðtogahlutverk í umfangsmiklu breytingaverkefni
Stofnun nýs sýslumannsembættis er umfangsmikið breytingaverkefni sem felur í sér skipulagslegar, stjórnsýslulegar og mannauðstengdar áskoranir. Í hlut sýslumanns fellur, í nánu samstarfi við dómsmálaráðuneytið, að leiða undirbúning og innleiðingu sameiningarinnar, bæði fyrir og eftir gildistöku laganna.
Þetta felur meðal annars í sér að móta skipulag embættisins, skilgreina verkaskiptingu milli starfsstöðva og tryggja samfellu í lögbundinni starfsemi á meðan á umbreytingu stendur. Um er að ræða eitt stærsta breytingaverkefni á sviði stjórnsýslu á undanförnum árum og krefst það skýrrar sýnar, festu í framkvæmd og víðtækrar leiðtogahæfni.
Sýslumaður ber ríka ábyrgð á að leiða starfsfólk í gegnum breytingaferlið af festu, sanngirni og fagmennsku. Lögð er sérstök áhersla á að viðhalda trausti, stuðla að góðum starfsanda og tryggja stöðugleika í rekstri embættisins á umbreytingatímanum.
Að lokinni innleiðingu mun hlutverk sýslumanns í auknum mæli beinast að stöðugum rekstri, festu í stjórnsýslu og markvissri þróun starfseminnar. Í því felst að byggja ofan á þá innviði sem mótaðir verða á umbreytingatímanum, með áherslu á fyrirsjáanleika, fagmennsku og stöðugar umbætur í þjónustu.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 1. mgr. 3. gr. laga um sýslumann nr. 9/2026. Þar kemur m.a. fram að auk almennra hæfisskilyrða til þess að hljóta skipun í embætti á vegum ríkisins skuli umsækjendur hafa háskólamenntun og reynslu af stjórnun sem nýtist í starfi.
Aðrar hæfniskröfur eru:
- Öflug leiðtogahæfni og farsæl reynsla af stjórnun og stefnumótun.
- Rík samskipta- og samstarfshæfni, ásamt hæfni til að leiða faglegt samstarf við ólíka hagaðila.
- Þekking og reynsla á sviði rekstrar og áætlanagerðar.
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
- Þekking og yfirsýn á verkefnum sýslumanns er kostur.
- Þekking og reynsla af umbóta- og þróunarstarfi er kostur.
- Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.
- Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Dómsmálaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn, að loknu mati hæfnisnefndar. Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl nk. Umsóknir skulu sendar á [email protected]. Nöfn allra umsækjenda verða birt að liðnum umsóknarfresti.
Nánari upplýsingar um starfið og hæfniskröfur er að finna á Starfatorgi.