13 apríl 2026

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Listi yfir forstöðumenn 1. febrúar 2026

Listi yfir forstöðumenn skv. 2. mgr. 22. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins
nr. 70/1996 með síðari breytingum.

Í 1. mgr. 22. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 með síðari breytingum eru taldir upp í 14 töluliðum þeir sem teljast embættismenn samkvæmt lögunum. Í 2. mgr. segir að ráðherra skeri úr því hvaða starfsmenn falli undir 13. tölulið þessarar greinar, þ.e. forstöðumenn ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja sem ekki eru taldir sérstaklega upp í 1. - 12. og 14. tölulið. Jafnframt segir að ráðherra skuli fyrir 1. febrúar ár hvert birta í Lögbirtingablaði lista yfir þá starfsmenn.

Listinn fyrir árið 2026 er svohljóðandi:

Atvinnuvegaráðuneytið

Ferðamálastjóri

Fiskistofustjóri

Forstjóri Matvælastofnunar

Forstjóri Neytendastofu

Forstjóri Samkeppniseftirlitsins

Forstöðumaður Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna

Forstöðumaður Verðlagsstofu skiptaverðs

Dómsmálaráðuneytið

Forstjóri Landhelgisgæslu Íslands

Forstjóri Persónuverndar

Forstjóri Þjóðskrár Íslands

Framkvæmdastjóri landskjörstjórnar

Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu.

Héraðssaksóknari

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála.

Forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Forstjóri Sjónstöðvarinnar

Forstjóri Skipulagsstofnunar

Forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins

Forstjóri Vinnueftirlits ríkisins

Forstjóri Vinnumálastofnunar

Umboðsmaður skuldara

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fjársýslustjóri

Forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins

Forstjóri Framkvæmdasýslu-Ríkiseigna

Forsætisráðuneytið

Hagstofustjóri

Seðlabankastjóri Seðlabanka Íslands

Heilbrigðisráðuneytið

Forstjóri Geislavarna ríkisins

Forstjóri Landspítalans

Forstjóri Lyfjastofnunar

Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands

Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands

Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands

Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða

Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands

Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri

Forstjóri Sjúkratryggingastofnunar

Forstjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands

Landlæknir

Innviðaráðuneytið

Forstjóri Byggðastofnunar

Forstjóri Fjarskiptastofu

Forstjóri Samgöngustofu

Forstjóri Vegagerðarinnar

Rekstrarstjóri rannsóknarnefndar samgönguslysa

Menningar-, nýsksköpunar og háskólaráðuneytið

Forstjóri Hugverkastofunnar

Forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu

Forstöðumaður Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum

Forstöðumaður Hljóðbókasafns Íslands

Forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands

Forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands

Forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Íslands

Forstöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra

Forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar

Framkvæmdastjóri Menntasjóðs námsmanna

Landsbókavörður

Listdansstjóri Íslenska dansflokksins

Safnstjóri Listasafns Íslands

Safnstjóri Náttúruminjasafns Íslands

Rektor Háskóla Íslands

Rektor Háskólans á Akureyri

Rektor Hólaskóla – Háskólans á Hólum

Rektor Landbúnaðarháskóla Íslands

Þjóðleikhússtjóri

Þjóðminjavörður

Þjóðskjalavörður

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Forstjóri Barna- og fjölskyldustofu

Forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu

Forstjóri Ráðgjafar- og greiningarstöðvar

Skólameistari Borgarholtsskóla

Skólameistari Flensborgarskóla

Skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla

Skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti

Skólameistari Fjölbrautaskólans í Garðabæ

Skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra

Skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands

Skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja

Skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands

Skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík

Skólameistari Framhaldsskólans á Laugum

Skólameistari Framhaldsskólans í Mosfellsbæ

Skólameistari Framhaldsskólans í A-Skaftafellssýslu

Skólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum

Skólameistari Kvennaskólans í Reykjavík

Skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni

Skólameistari Menntaskólans á Akureyri

Skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum

Skólameistari Menntaskólans á Ísafirði

Skólameistari Menntaskólans á Tröllaskaga

Skólameistari Menntaskólans í Kópavogi

Skólameistari Menntaskólans í Reykjavík

Skólameistari Menntaskólans við Hamrahlíð

Skólameistari Menntaskólans við Sund

Skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands

Skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Forstjóri Íslenskra orkurannsókna

Forstjóri Náttúruverndarstofnunar

Forstjóri Náttúrufræðistofnunar

Forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar

Forstjóri Veðurstofu Íslands

Framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs

Forstöðumaður Minjastofnunar Íslands

Forstöðumaður Lands og skóga



Fjármála- og efnahagsráðuneytið, 6. mars 2026.


F.h.r.


Jökull Heiðdal Úlfsson                           Þröstur Freyr Gylfason