14 apríl 2026
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Bætt yfirsýn yfir stöðu barna með uppfærðu mælaborði
Mælaborð um farsæld barna hefur verið uppfært með nýjustu niðurstöðum úr grunnskólakönnun Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ) frá árinu 2025. Með uppfærslunni er nú hægt að nálgast samfelldar tölulegar upplýsingar um stöðu barna árin 2023 til 2025, sem veitir stjórnvöldum og almenningi betri innsýn í stöðu barna hér á landi.
Mælaborðið var fyrst birt í lok apríl 2024 og byggir að stórum hluta á gögnum úr árlegri grunnskólakönnun ÍÆ. Könnunin er lögð fyrir nemendur í 4. til 10. bekk grunnskóla um land allt og er markmiðið að ná til sem flestra barna til að tryggja trausta og víðtæka mynd af líðan, aðstæðum og hegðun þeirra.
Í tengslum við nýjustu uppfærslu mælaborðsins voru gerðar breytingar á skilgreiningum og flokkun gagna. Markmið þeirra er að auka samræmi við aðferðafræði Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar og landshlutaskiptingu stjórnsýslunnar. Með því verður samanburður milli svæða og yfir tíma markvissari og áreiðanlegri.
Mælaborðið er hluti af aukinni áherslu stjórnvalda á að byggja upp heildstæða yfirsýn yfir stöðu barna á Íslandi. Með samþættingu gagna um menntun og líðan barna er leitast við að styðja betur við stefnumótun og ákvarðanatöku sem snýr að börnum og fjölskyldum þeirra.
Slík heildræn nálgun er lykilatriði í innleiðingu laga um farsæld barna, þar sem markmiðið er að tryggja snemmtæka greiningu á áskorunum og efla samvinnu milli kerfa. Mælaborðið nýtist því ekki aðeins sem upplýsingaveita heldur einnig sem mikilvægt verkfæri til að fylgjast með þróun og árangri aðgerða yfir tíma.
Uppfærslan styrkir þannig grunninn að gagnadrifinni stefnumótun í málefnum barna og undirstrikar vilja stjórnvalda til að tryggja að öll börn á Íslandi búi við góðar aðstæður til náms, öryggis og velferðar.