16 apríl 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Ísland bakhjarl kyn- og frjósemisheilbrigðisverkefnis í Úganda
Ísland tekur ásamt Danmörku og Svíþjóð þátt í stóru verkefni Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) í Úganda á sviði kyn- og frjósemisheilbrigðis. Stuðningur Íslands er til þriggja ára og nær verkefnið til níu héraða. Framlagið, sem rúmast innan samþykktra fjárheimilda, verður að stærstum hluta helgað forvörnum og aðgerðum gegn fæðingarfistli.
Samningur um stuðning Íslands við verkefnið Strengthening Adolescents and Youth Empowerment and Rights (SAY+) var undirritaður á skrifstofu UNFPA í Kampala í dag. Hildigunnur Engilbertsdóttir, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Kampala, skrifaði undir samninginn fyrir Íslands hönd. SAY+ verkefnið miðar einkum að því auka upplýsingagjöf og þjónustu á sviði kyn- og frjósemisheilbrigðis- og réttinda (SRHR) og efla forvarnir gegn kynbundnu ofbeldi meðal ungs fólks á aldrinum 10-24 ára, þar á meðal í flóttamannabyggðum og viðtökusamfélögum. Auk Íslands eru Danmörk og Svíþjóð bakhjarlar verkefnsins, sem verður unnið í náinni samvinnu við stjórnvöld í Úganda.
„Ísland hefur undanfarin ár átt í farsælu samstarfi við UNFPA um forvarnir og aðgerðir gegn fæðingarfistli í Namayingo-héraði og á grunni þess árangurs ætlum við að byggja í SAY+ verkefninu. Það er síðan sérstakt fagnaðarefni að öll norrænu ríkin sem starfrækja sendiráð í Úganda skuli taka höndum saman um þetta mikilvæga málefni sem kyn- og frjósemisheilbrigði er, en Úganda stendur frammi fyrir miklum áskorunum á því sviði á sama tíma og alþjóðleg framlög til málaflokksins hafa farið mjög þverrandi á undanförnum misserum,“ segir Hildigunnur Engilbergsdóttir, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Kampala.
SAY+ verkefnið byggist á heildrænni nálgun sem felur meðal annars í sér forvarnir, vitundarvakningu í samfélögum og styrkingu heilbrigðiskerfisins. Þótt meginmarkhópur verkefnisins sé ungt fólk, er jafnframt lögð sérstök áhersla á konur sem hafa orðið fyrir fylgikvillum við barnsburð, einkum fæðingarfistli. Heildarframlag Íslands til SAY+ verkefnisins er þrjár milljónir bandaríkjadala yfir þriggja ára tímabil. Þar verður sjónum sérstaklega beint að konum sem eru ýmist útsettar fyrir eða þjást af fæðingarfistli og verður sem fyrr segir byggt á góðum árangri verkefnisins í Namayingo. Unnið verður í níu héruðum í norður- og austurhluta landsins.
Margvísleg mikilvæg verkefni í deiglunni
Á meðal skilgreindra afurða verkefnisins er að efla þekkingu og vitund um orsakir og forvarnir gegn fæðingarfistli, sem og að auka eftirspurn eftir þjónustu. Þá er áætlað að á verkefnatímanum verði gerðar rúmlega 1.100 aðgerðir vegna fæðingarfistils. Skurðstofur verða uppfærðar á fimm héraðssjúkrahúsum og alls fá 270 heilbrigðisstarfsmenn, þar á meðal ljósmæður, fæðingar- og svæfingalæknar, þjálfun í öruggum skurðaðgerðum til að fyrirbyggja fæðingarfistil. Loks er áformað að 850 konur fái endurhæfingu og stuðning við félagslega enduraðlögun eftir aðgerð. Sem liður í efnahagslegri valdeflingu kvenna í kjölfar aðgerðar fá konur beinan fjárstuðning að jafnvirði 30 bandaríkjadala ásamt starfsmenntun.
Fæðingarfistill er alvarlegt og viðvarandi vandamál í fátækustu ríkjum heims, en kvillinn þekkist varla á Vesturlöndum. Orsök fæðingarfistils er rifa í fæðingavegi, t.d. milli ristils og legganga sem ekki er meðhöndluð. Konur sem þjást af fæðingarfistli eiga því oft erfitt með að hafa stjórn á þvaglátum eða hægðum. Áætlað er að 75.000-100.000 konur þjáist af fæðingarfistli í Úganda. Fjöldi þeirra eykst stöðugt því á hverju ári bætast við um 1.900 ný tilfelli en aðeins um 1.700 fæðingarfistilsaðgerðir eru gerðar árlega. Tíðni mæðradauða í landinu er há þrátt fyrir að verulega hafi dregið úr honum undanfarna áratugi. Þá er tíðni þungana meðal unglingsstúlkna í Úganda sú hæsta í Austur-Afríku og hefur aukist á undanförnum árum. Ein af hverjum fjórum stúlkum á aldrinum 15-18 ára hefur ýmist eignast barn eða er þunguð.
Ísland fjármagnar einnig fæðingarfistúluverkefni með UNFPA í Malaví og Síerra Leóne. Með stuðningi við verkefnið í Úganda leggur Ísland því áfram sitt af mörkum í að berjast gegn fæðingarfistli í öllum tvíhliða samstarfsríkjum sínum á sviði þróunarsamvinnu.