16 apríl 2026

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Uppbygging verknámsaðstöðu Fjölbrautaskóla Suðurnesja

{image.Description}

Mennta- og barnamálaráðuneytið vinnur að uppbyggingu verknámsaðstöðu framhaldsskóla víðs vegar um landið. Meðal fyrirhugaðra framkvæmda er uppbygging Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Hönnun er fyrirhuguð í júní nk. og að verkframkvæmdir geti hafist í janúar á næsta ári. Stefnt er að því að ljúka verkinu sumarið 2028 og hefja kennslu í nýju húsnæði haustið 2028.

Samhliða þessari uppbyggingu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja verður einnig ráðist í framkvæmdir við þrjá aðra verknámsskóla: Verkmenntaskólann á Akureyri, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Menntaskólann á Ísafirði. Tímalínur varðandi alla skólana eru svipaðar en fyrir liggur heimild á grundvelli frumathugana til að fara í útboð þar sem boðin verður út hönnun og framkvæmdahluti uppbyggingarinnar.

Til staðar eru uppsafnaðar fjárheimildir sem nýtast við fjármögnun verkefnanna fjögurra. Fráteknar fjárheimildir fyrri ára og fjárheimildir í gildandi fjármálaáætlun fyrir árin 2026-2030 í uppbyggingu verknámsskóla eru tæpir fimm milljarðar (4.967 m.kr.). Þær nýtast í uppbyggingu verknámsskólanna fjögurra og uppbyggingu verknámsaðstöðu Fjölbrautaskólans í Breiðholti sem stendur nú yfir.