17 apríl 2026
/
Dómsmálaráðuneytið
Ávarpaði málþing og kynnti sér störf Landhelgisgæslunnar
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, flutti í gær ávarp á opnu málþingi um leit og björgun á norðurslóðum í Háskólanum á Akureyri. Málþingið var á vegum Varðbergs, Norðurslóðanetsins, Landhelgisgæslu Íslands, dómsmálaráðuneytisins og Háskólans á Akureyri. Ráðherrann kynnti þar meðal annars nýjan starfshóp um næstu kynslóð fjarskiptakerfis fyrir öryggis-og neyðarþjónustu.
„Það er eðlilegt að við séum að ræða öryggismál Íslands. Og ekki bara eðlilegt, heldur nauðsynlegt. Opna augun, horfa á staðreyndir og bregðast við þeim blákalt – ekki hvernig við viljum að staðan sé. Umræðan snýst um raunverulegar áskoranir. Aukna umferð á hafi og í lofti. Heimsmyndin er breytt og nýjar tegundir atvika geta haft áhrif á samstarf og viðbrögð.“
Ráðherrann lagði í ræðu sinni mikla áherslu á hlutverk Landhelgisgæslunnar við að efla áfallaþol Íslands og hversu mikilvægu hlutverki Ísland gegnir við eftirlit, leit og björgun á norðurslóðum. Þetta væri hlutverk sem tekið væri alvarlega.
Ákveðin og mikilvæg skref hefðu verið stigin til að styrkja Landhelgisgæsluna og gera henni kleift að sinna þessu hlutverki, til að mynda nýir aðgerðarbátar sem eru komnir til landsins og auka getu Landhelgisgæslunnar til að bregðast hratt við atburðum sem geta komið upp nær landi. Bátarnir voru keyptir með styrk úr landamærasjóði Evrópusambandsins og var einn þeirra til sýnis fyrir utan Háskólann á Akureyri.
Ráðherra minnti líka á framtak Slysavarnafélagsins Landsbjörg sem hefði unnið þrekvirki við að endurnýja björgunarskipaflota félagsins um allt land og þannig aukið öryggi sjófarenda til muna.
Skipar starfshóp um fjarskiptaöryggi
Í ávarpinu nefndi hún einnig mikilvægi fjarskiptaöryggis og greindi frá ákvörðun sinni að setja saman starfshóp sem hefur það hlutverk að kortleggja og greina næstu kynslóð fjarskiptakerfis fyrir öryggis-og neyðarþjónustu. Í hópnum sitja fulltrúar frá innviðaráðuneytinu, Neyðarlínunni, Farice, ríkislögreglustjóra ásamt dómsmálaráðuneytinu.„Aðgengi að öruggu fjarskiptakerfi er forsenda fyrir því að almannavarnir og leit og björgun geti sinnt hlutverki sínu. Við vitum að TETRA kerfið er að úreldast og þörfin fyrir nýtt kerfi er mikil,“ sagði ráðherra á málþinginu í gær.
100 ára afmæli Landhelgisgæslu Íslands
Í tilefni af málþinginu bauð Landhelgisgæslan ráðherranum að kynna sér störf þyrlusveitarinnar, áhafnarinnar á Þór auk þess sem ráðherrann flaug með TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar.
Ráðherra fór með TF-GRÓ til Akureyrar. Þyrlan lenti á Oddeyrarbryggju þar sem varðskipið Þór var. Þór kom til Akureyrar í vikunni og fyrr um daginn höfðu nemendur af miðstigi úr Brekkuskóla skoðað skipið. Landhelgisgæslan fagnar á þessu ári hundrað ára afmæli sínu og ætlar að bjóða þjóðinni að skoða og kynna sér starfsemina en sjálf afmælisveislan verður í Vestmannaeyjum þann 1. Júlí og síðar í haust í Reykjavík.
Páll Geirdal, skipherra á Þór, tók á móti ráðherranum, og sýndi henni skipið en Páll hóf störf hjá Gæslunni fyrir fjörutíu árum. Ráðherra snæddi hádegisverð með áhöfn skipsins áður en hún ávarpaði málþingið í Háskólanum á Akureyri. Hún flaug síðan suður með TF-SIF. Rauneftirlit með TF-SIF hefur verið stóraukið að undanförnu en vélinni hefur aldrei verið flogið meira yfir Íslandsmiðum en á síðasta ári.