17 apríl 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Föstudagspóstur 17. apríl 2026
Heil og sæl,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, hélt í gær til Antalya í Tyrklandi þar sem hún mun sækja Antalya Diplomacy Forum sem er alþjóðleg ráðstefna um utanríkismál og alþjóðasamskipti.
Á miðvikudag staðfestu íslensk stjórnvöld aðild sína að samningi um að koma á fót stjórnarnefnd sérstaks dómstóls vegna glæpa gegn frið í Úkraínu á vettvangi Evrópuráðsins. Ráðherra sagði að "Ísland stendur sem fyrr dyggilega við bakið á úkraínsku þjóðinni og við erum staðráðin í því að standa vörð um alþjóðalög og tryggja að Rússar verði látnir bera ábyrgð á grimmdarverkum sínum í Úkraínu".
Á mánudag stóðu Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytið og Norræna húsið fyrir árlegu ráðstefnu sinni um utanríkismál í samstarfi við Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála. Ráðstefnan bar heitið Alþjóðasamvinna á krossgötum: hvert stefnir Ísland? og fór fram í Norræna húsinu.
Ráðherra hélt ávarp á ráðstefnunni þar sem hún segir það ekki vera valkost fyrir Ísland að grafa sig í fönn við núverandi stöðu alþjóðamála. Í ávarpi sínu gerði ráðherra að umtalsefni niðurstöður nýrrar viðhorfskönnunar sem Maskína framkvæmir árlega fyrir utanríkisráðuneytið, þar sem kemu fram að 84% landsmanna hafi meiri áhyggjur af þróun alþjóðamála nú en fyrir ári síðan. Þá hefur 71% aðspurðra miklar áhyggjur af þróun alþjóðamála á sama tíma og 88% segjast upplifa Ísland sem öruggt land.
Þorgerður Katrín var meðal 17 annarra utanríkisráðherra sem skrifuðu undir sameiginlega yfirlýsingu þar sem kallað var eftir friði í Líbanon.
Foreign Minister @thorgkatrin joins seventeen other FMs in calling for the inclusion of Lebanon in regional de-escalation efforts in the Middle East, urging all parties to work toward a lasting political solution. 👉 https://t.co/wWE4mfGYpX
— MFA Iceland 🇮🇸 (@MFAIceland) April 14, 2026
Á mánudaginn endurnýjaði ráðherra einnig samstarfssamninga við Félag sameinuðu þjóðanna og landsnefndir UNICEF og UN Women um kynningarstarf og fræðslu um alþjóðasamstarf og þróunarsamvinnu. Undirritun samninganna, sem rúmast innan samþykktra fjárheimilda, fór fram í húsakynnum ráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið hefur um árabil átt gott samstarf við félögin um kynningar- og fræðslumál en öll gegna þau mikilvægu hlutverki við að veita upplýsingar og efla umræðu um alþjóðlega þróunarsamvinnu.
Rétt er að geta þess að utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna komandi sveitarstjórnarkosninga hófst í dag. Nálgast má upplýsingar um opnunartíma sendiskrifstofa á vefsíðum þeirra og samfélagsmiðlum.
Brussel
Sendiherrar EFTA ríkjanna funduðu með ráðgjafanefnd EFTA á þriðjudaginn 14. apríl í húsakynnum EFTA-skrifstofunnar í Brussel. Þar ræddu sendiherrarnir og aðilar vinnumarkaðsins m.a. um áhrif alþjóðlegrar og evrópskrar þróunar á EES-samstarfið, breytta nálgun á iðnaðarstefnu Evrópusambandsins og aukningu á þverfaglegri stefnumótun hjá sambandinu.
Fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York
Anna Jóhannsdóttir, sendiherra og fastafulltrúi Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York, flutti tvö ávörp nýlega á allsherjarþinginu.
At #CPD59, 🇮🇸 emphasized the importance of gender equality & SRHRR for the achievement of Agenda 2030: https://t.co/ULuZQJoUIV pic.twitter.com/eS8659KGIo
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) April 17, 2026
At yesterday’s veto discussion, 🇮🇸 on behalf of 🇮🇸🇫🇮🇳🇴 reiterated support for the veto initiative. The casting of the veto at the #UNSC on April 7 prevented the Council once again from taking concerted & decisive action to reestablish peace & security https://t.co/w73c7Pvn4X pic.twitter.com/gaJ7r5TQ67
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) April 17, 2026
Helsinki
Harald Aspelund, sendiherra okkar í Finnlandi, og Ásthildur Jónsdóttir tóku á móti nemendum Menntaskólans á Ísafirði í embættisbústaðnum í Helsinki í vikunni. Þar fór sendiherra með kynningu á störfum sendiráðsins og fjallaði einnig um íslenska menningu og list, en nemendurnir eru á listabraut skólans.
Kampala
Ísland er bakhjarl nýs kyn- og frjósemisheilbrigðisverkefnis í Úganda á vegum Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) í samstarfi við Danmörku og Svíþjóð. Stuðningurinn er til þriggja ára og nær verkefnið til níu héraða í Úganda. Framlagið, sem rúmast innan samþykktra fjárheimilda, verður að stærstum hluta helgað forvörnum og aðgerðum gegn fæðingarfistli.
Hildigunnur Engilbertsdóttir, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Úganda, skrifaði undir samninginn fyrir Íslands hönd á skrifstofu UNFPA í Kampala í gær.
Kaupmannahöfn
Á mánudag fór fram útgáfuhóf í embættisbústaðnum í Kaupmannahöfn fyrir bókina Alt fra hatte til sko eftir Einar Má Guðmundsson í danskri þýðingu Erik Skyum-Nielsen. Bókin er sú 29. eftir Einar Má sem kemur út í Danmörku.
Lilongwe
Starfsfólk sendiráðsins okkar í Lilongwe, Malaví, voru á flakki í vikunni vegna tveggja vettvangsferða í Nkhotakota-héraði.
London
Í síðustu viku fór fram ráðstefnan London Defence Conference, þar sem yfirmenn hefafla sem skipa Sameiginlegu viðbragðssveitina (JEF) voru þar heiðursgestir ásamt yfirmanni herafla Kanada. Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, tók þátt í pallborðsumræðum um öryggi á norðurslóðum ásamt yfirmönnum herafla Kanada, Svíþjóðar, Danmerkur og Finnlands.
Madríd
Kristján Andri Stefánsson, sendiherra Íslands í Madríd, fundaði með borgarstjóra Madrídar, José Luis Martinez Almeida, í ráðhúsi borgarinnar, Cibeles-höllinni. Á fundi þeirra ræddu þeir tækifæri til þess að styrkja tengls borgarinnar við sendiráðið og m.a. um samstarf á sviði menningar og listar, ferðaþjónustu og fleira.
View this post on Instagram
A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)
Þá tók sendiherra einnig á móti stjórnendum bloggmiðilsins Naciones en Ruinas sem greinir frá alþjóðasamskiptum og ræddi við þau um málefni Íslands og Spánar, utanríkisstefnu Íslands, EES-samstarfið, fiskveiðar og margt fleira.
View this post on Instagram
A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)
Nýja-Delí
Sukhvinder Singh Sukhu, forsætisráðherra Himachal Pradesh fylkis, skoðaði í vikunni verksmiðju þar sem ávextir eru þurrkaðir og kældir en verksmiðjan er knúin af jarðvarma í samstarfi við íslenska fyrirtækið Geotropy.
Starfsfólk sendiráðsins okkar í Nýju-Delí hittust og snæddu hádegismat saman í tilefni páskanna, þar var að sjálfsögðu haldið í íslenskar hefðir og boðið upp á íslensk páskaegg!
Osló
Sendiráð Íslands í Osló stóð fyrir opnu húsi í byrjun vikunnar í nýjum embættisbústað sendiráðsins við Aker Brygge í Osló.Sendiherra Íslands, Högni Kristjánsson, og Ásgerður Magnúsdóttir tóku vel á móti öðrum sendiherrum, samstarfsaðilum og vinum sendiráðsins og kynntu húsnæðið. Embættisbústaðurinn var opnaður í janúar eftir miklar endurbætur undir forystu arkitektsins Hauks Morthens hjá KIMA arkitektur.
París
Í föstudagspósti í lok mars var greint frá því að íslenskar kvikmyndir og íslenski kvikmyndageirinn voru í kastljósi athyglinnar í borginni Vannes, sem liggur suðvestur af París, á evrópskri kvikmyndahátíð sem ber nafnið European Cinema Meetings. Sendiráð Íslands í París var stuðningsaðili hátíðarinnar.
Sendiráðið okkar í París deildi flottum myndum sem teknar voru á hátíðinni, en gaman er að segja frá því að íslenskar sýningar voru sérstakelga vel sóttar af gestum hátíðarinnar.
Una Jóhannsdóttir, varamaður sendiherra Íslands í París, tók þátt í pallborðsumræðum um öryggi á norðurslóðum sem norræna félagið í Sciences Po háskólanum í París stóð fyrir í vikunni.
Mercredi @NordicAsso_IEP @sciencespo Paris a organisé une table ronde sur la sécurité dans l’#Arctique et coopération internationale en période d’instabilité géopolitique. L’adjointe de l’ambassade @UJohannsdottir a participé à cet échange intéressant avec ses collègues nordiques pic.twitter.com/yfZLvz36Bd
— L’Islande à Paris 🇮🇸 (@IcelandinParis) April 17, 2026
Peking
Þórir Ibsen, sendiherra Íslands í Peking, opnaði listasýninguna The Past and Future Journey eftir Sigurð Guðmundsson í Kínversk-evrópska listasafninu í Xiamen í síðustu viku. Sýningin stendur yfir til 9. maí nk.
Tókýó
Tækifæri til nánara samstarfs milli Íslands og Filippseyja á sviði jarðhitamála og viðskipta voru meðal þess sem rætt var um á fundi Hreins Pálssonar, sendiherra, og Ferdinand Romualdez Marcos yngri, forseta Filippseyja, sem fór í tilefni afhendingar trúnaðarbréfs Hreins sem sendiherra Íslands gagnvart Filippseyjum með aðsetur í Tókýó.
Þar að auki voru ýmsir tvíhliða samningar til umræðu á sviði flugsamgangna, skattamála og fjárfestinga sem gætu stuðlað að auknum viðskiptum milli ríkjanna.
Varsjá
Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands í Varsjá, ræddi við nemendur Háskólans í Varsjá í dag um 80 ára stjórnmálasamband Íslands og Póllands og náið samstarf ríkjanna.
Sendiherra tók þátt í minningarathöfn til heiðurs fórnarlamba fjöldamorðsins í Katyn ásamt öðrum sendiherrum gagnvart Póllandi. Forseti Póllands hélt þar ávarp.
Meira verður það ekki í bili,
kveðja, upplýsingadeild.