17 apríl 2026
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Utanríkisráðuneytið
Megináhersla lögð á sameiginlega hagsmuni og sjálfbærni
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Costas Kadis sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins sátu árlegan samráðsfund ásamt sendinefndum Íslands og ESBí Reykjavík í dag, föstudaginn 17. apríl.
Málefni hafsins voru meginefni fundarins sem haldinn var til að styrkja aukið og víðtækara samstarf milli ESB og Íslands um ýmis atriði tengd hafinu. Samráðsfundurinn er í samræmi við viljayfirlýsingu milli Íslands og ESB sem var undirrituð í júlí sl. þar sem kemur einnig fram að samstarf verði aukið við verndun líffræðilegs fjölbreytileika og orkuskipti í sjávarútvegi og fiskeldi.
Einnig ræddu sendinefndirnar samstarf um málefni norðurslóða og sjálfbærar fiskveiðar auk samstarfs viðvísindarannsóknir og fiskeldi.
„Sem fyrr leggjum við megináherslu á samstarf um sjálfbærar fiskveiðar og áskoranir sem við blasa í málefnum hafsins“ sagði atvinnuvegaráðherra. „Árlegur samráðsfundur okkar með sjávarútvegsstjóra ESB er mikilvægur vettvangur til að vinna sameiginlega að stefnumörkun og lausnum til framtíðar, öllum til heilla“.
Málefni hafsins voru meginefni fundarins sem haldinn var til að styrkja aukið og víðtækara samstarf milli ESB og Íslands um ýmis atriði tengd hafinu.