21 apríl 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið
Ný heildstæð sóttvarnalöggjöf orðin að veruleika
Alþingi samþykkti í dag frumvarp heilbrigðisráðherra til nýrra sóttvarnalaga. Frumvarpið var fyrst lagt fram á vorþingi árið 2022 að undangenginni vinnu starfshóps sem skipaður var í júní 2021 til að skrifa drög að frumvarpi til heildarlaga um sóttvarnir. Frumvarpið hefur verið lagt fimm sinnum fyrir þingið og í meðförum þess hafa ýmsar breytingar verið gerðar á efni þess: „Vönduð og vel ígrunduð löggjöf um sóttvarnir er gríðarlega mikilvæg fyrir heilsu og velferð landsmanna ef vá steðjar að vegna farsótta. Hér hefur verið vandað til verka og öllum steinum velt við til að gera löggjöfina sem best úr garði. Ég fagna þessum stóra áfanga innilega,“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.
Með nýjum lögum eru skýrð betur þau úrræði sem sóttvarnalæknir og heilbrigðisráðherra geta gripið til vegna hættu á farsóttum til eða frá Íslandi innan lands og vegna hættu á útbreiðslu smits frá einstaklingum. Markmið lagasetningar er að vernda almannaheill, þ.e. samfélagið og líf og heilsu einstaklinga gegn smitsjúkdómum og annarri vá sem lögin taka til. Einnig eru skýrðar þær heimildir sem stjórnvöld hafa til opinberra sóttvarnaráðstafana og stjórnsýsla sóttvarna einfölduð og skýrleiki þeirra aukinn.