22 apríl 2026

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Lokum hleðslugatinu – opnað fyrir styrkumsóknir 1. maí

{image.Description}

Loftslags- og orkusjóður auglýsir til umsóknar styrki til uppbyggingar hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla. Opnað verður fyrir umsóknir 1. maí nk. Átakinu er ætlað að styrkja net hleðslustöðva hringinn í kringum landið þannig að hvergi finnist þéttbýlisstaður á Íslandi án hraðhleðslustöðvar og hvergi á þjóðvegakerfi landsins verði lengra en 100 km á milli hraðhleðslustöðva.

Styrkirnir eru liður í sértækum aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna stríðsátaka við Persaflóa sem kynntar voru á fréttamannafundi 10. apríl síðastliðinn. Þær miða annars vegar að því að verja heimili fyrir áhrifum hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu og hins vegar að því að gera sem flestum kleift að slíta sig frá dælunni, skipta yfir á rafmagnsbíl og nota hreina íslenska orku í stað innflutts jarðefnaeldsneytis.

Auglýst er eftir verkefnum:

A.      Í öllum þéttbýlisstöðum þar sem ekki eru hraðhleðslustöðvar nú þegar eða hleðsluinnviðir eru ófullnægjandi

B.      Á stöðum á þjóðvegakerfinu þar sem lengst er á milli hraðhleðslustöðva

Styrkupphæð getur numið allt að 20 milljónum króna, en þó aldrei meira en 50% af heildarkostnaði. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að boðið sé upp á snertilausa greiðslu með greiðslukorti án þess að sérstakt forrit eða áskrift þurfi til.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra:

„Við afnámum vörugjöld af rafbílum 1. janúar og nú snarfjölgum við hleðslustöðvum.

Framleiðslukostnaður rafmagnsbíla hefur farið minnkandi á undanförnum árum og drægni þeirra aukist eftir því sem rafhlöðutækni fleygir fram. Úrvalið hefur margfaldast og verð á rafbílum lækkað í samanburði við sambærilega eldsneytisbíla.

Í ljósi þess að bensínverð er hátt á Íslandi en raforkuverð með því lægsta sem gerist í heiminum er efnahagslegur ávinningur og rekstrarsparnaður af rafbílavæðingu fyrir heimili og fyrirtæki meiri hér en í nágrannalöndunum. Og með markvissri fjölgun hleðslustöðva viljum við senda skýr skilaboð: Núna er rétti tíminn til að skipta yfir á rafmagnsbíl!

Með því að skipta óhreinu innfluttu eldsneyti út fyrir hreina íslenska orku náum við ekki bara árangri í loftslagsmálum heldur spörum tugmilljarða gjaldeyri, styrkjum orkusjálfstæði Íslands og verjum heimilisbókhaldið fyrir ytri sveiflum sem við höfum enga stjórn á.“

Umsóknafrestur vegna styrkjanna er til  1. júní kl. 15:00 og má frekari upplýsingar finna á vef Loftslags- og orkusjóðs, sem fer með umsjón með auglýsingu og umsýslu styrkjanna.

Stykir vegna hleðsluinnviða við gististaði og fjölbýli verða auglýst innan skamms en jafnframt vinna stjórnvöld að breytingum til þess að tryggja samræmdara og einfaldara greiðslufyrirkomulag við hleðslu rafbíla.

Lokum gatinu - Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða