24 apríl 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Föstudagspóstur 24. apríl 2026

Heil og sæl,

líkt og greint var frá í síðasta Föstudagspósti fór tók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, þátt í Antalya Diplomacy Forum sem er alþjóðleg ráðstefna um utanríkismál og alþjóðaviðskipti. Þar átti ráðherra nokkra tvíhliða fundi t.a m. Cindy McCain, framkvæmdastjóra Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. World Food Programme),  Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, og Ayman Safadi, utanríkisráðherra og varaforsætisráðherra Jórdaníu.

 

Honored to attend the #ADF2026 - an important platform for dialogue and cooperation in times of global crises. Grateful to the MFA of Türkiye @HakanFidan for the invitation and look forward to the opening of an Embassy of Türkiye in Iceland 🇮🇸🇹🇷 pic.twitter.com/y9KqaWMihO

— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) April 18, 2026

 

Always good to meet you @andrii_sybiha and to reaffirm Iceland’s unwavering support for Ukraine 🇮🇸🇺🇦 https://t.co/uKmYFxqQsb

— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) April 18, 2026

 

Grateful for a valuable insight on the situation in the Middle East. Good bilateral relations are more important now than ever 🇮🇸🇯🇴 https://t.co/YA8g5csCWs

— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) April 18, 2026

 

Ráðherra heimsótti alþjóðadeild Verzlunarskóla Íslands á mánudaginn og ræddi við áhugasama nemendur um Evrópumálin og stöðu alþjóðamála. 

 

Þorgerður Katrín tók þátt í viðburði íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins Víkonnekt á þriðjudag. Þar flutti hún ávarp um nýsköpun og stefnu íslenskra stjórnvalda í uppbyggingu gervigreindarinnviða o.fl. Einnig tók hún þátt í pallborðsumræðum um innleiðingu EES-löggjafar í íslenskan rétt og tækifæri Íslands til þess að vera leiðandi í nútímavæðingu þessara ferla.

Í dag fór fram opinn fundur utanríkismálanefndar Alþingis með þátttöku ráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

 

 

Helsinki

Á mánudaginn 20. apríl voru tvær nýjar listasýningar opnaðar í Gallery Käytävä, Shifting Water og Drift/Melt/TIDE, eftir íslensku listakonurnar Rúrí og Heklu Dögg. Galleríið er staðsett í embættisbústaðnum í Helsinki. 

 

 

Kaupmannahöfn

Hátíð Jóns Sigurðssonar var haldin í Jónshúsi í gær, sumardaginn fyrsta, 23. apríl. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, ávarpaði gesti og Hrefna Róbertsdóttir, þjóðskjalavörður, flutti hátíðarræðu. Á dagskránni voru einnig glæsileg tónlistaratriði í flutningi Jönu Maríu Guðmundsdóttur, Sigurdísar Söndru Tryggvadóttur, Helgu Diljár Jörundsdóttur og Ólínu Ákadóttur. Að lokum veitti forseti Alþingis verðlaun Jóns Sigurðssonar til rithöfundarins Einars Más Guðmundssonar. 

 

 

Lilongwe

Sigurður Geirsson, frá sendiráði Íslands í Lilongwe, ávarpaði gesti á viðburði á vegum þróunarsamvinnuverkefnisins The Bridging Hope Project í vikunni. Í tölu sinni staðfesti Sigurður áframhaldandi stuðning sendiráðs Íslands við verkefnið, en verkefnið veitir konum með fæðingarfistil mikilvægan stuðning. 

 

 

Í vikunni hitti sendiráðsteymið okkar einn af fyrrum þátttakendum þróunarsamvinnuverkefnisins Nhkotakota Basic Services Programme. Idrissa Jailosi útskrifaðist sem logsuðumaður í maí 2024 úr Linthipe tækniskólanum í Salima sem var að hluta fjármagnað af þróunarsamvinnuverkefninu. Með stuðningi í formi verkfæra hefur hann nú stofnað sitt eigið fyrirtæki, Chosen Works, sem nú skapar atvinnu fyrir fimm aðra einstaklinga.

 

 

London

Breskir þingmenn í þverpólitískum samstarfshópi um málefni fólks með athyglisbrest og ofvirkni tóku í dag á móti íslenska hestinum Presti við þinghúsið í Westminster til að vekja athygli á notkun hrossa til stuðnings við fólk með taugafjölbreytileika. Sturla Sigurjónsson, sendiherra, var að sjálfsögðu viðstaddur við komu Prests. Með honum á myndinni er Lindsay Hoyle, forseti neðri málstofu breska þingsins. 

 

 

Madríd

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, sótti árlegu sjávarútvegsráðstefnuna Seafood Expo Global 2026 sem fór fram í Barcelona í vikunni. 26 fulltrúar íslenskra fyrirtækja og stofnana tóku þátt í sameiginlegum bás Íslandsstofu, en auk þeirra var fjöldi annarra íslenskra fyrirtækja sem sóttu ráðstefnuna og voru með eigin sýningarbása. 

Atvinnuvegaráðherra ræddi við íslenska fulltrúa á sýningunni og fundaði meðal annars með spænskum starfsbróður sínum Luis Planas, landbúnaðar-, sjávarútvegs-, og matvælaráðherra Spánar. Kristján Andri Stefánsson, sendiherra Íslands á Spáni , og sendiráðsteymi okkar þar í landi studdu við heimsókn ráðherrans. 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)

 

Nýja-Delí

Á degi jarðarinnar (e. Earth Day) í gær flutti Benedikt Höskuldsson, sendiherra Íslands á Indlandi, hélt fyrirlestur um loftslagsbreytingar og þverfaglega menntun í O.P. Jindal háskólanum. 

 

 

Ottawa

Starfsfólk sendiráðsins okkar í Ottawa tók þátt í stofnun Canada-Nordic-Baltic-Poland Parliamentary Friendship Group eða vinafélags þingmanna Kanada, Noregs, Eystrasaltsríkjanna og Póllands. Hópurinn var stofnaður að frumkvæði eistneska sendiráðsins í Ottawa og þingmannsins Kurt Holman.

 

 

París

Listafólkið Sadie Cook og Jo Pawlowska frá Íslandi voru valin til þátttöku í ljósmyndasýningunni Circulation í París sem stendur yfir til 17. maí í Centquatre-Paris. Þetta er í 16. skipti sem hátíðin er haldin en í fyrsta skipti sem á henni eru fulltrúar frá Íslandi. Forstöðumaður Myndlistamiðstöðvar Íslands, Cecilie Gaihede, og fulltrúi sendiráðs Íslands í París fengu í gær leiðsögn um sýninguna sem samanstendur af 6000 ljósmyndum. 

 

 

Tokyo

Í Kansai-héraði hefur Ísland lagt áherslu á að efla samstarf við háskóla. Kyoto Sangyo-háskóli hefur frá 2007 tekið á móti 16 íslenskum nemendum og sent sex japanska nemendur til Íslands sem hefur skapað traustan grundvöll fyrir frekara samstarf, m.a. á sviði jafnréttisrannsókna. Á fundum við Osaka-háskóla og Osaka Metropolitan-háskóla var rætt um leiðir til að auka áhuga á íslensku máli, menningu og skiptinemasamstarfi.

 

 

Varsjá

Ragnheiður Kolsöe, varamaður sendiherra, flutti lokaávarp á viðburði um jafnrétti og mannréttindi á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar í Varsjá í vikunni. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, fyrrum félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, var meðal þátttakenda í pallborðsumræðum viðburðarins. 

 

 

Friðrik Jónsson, sendiherra, flutti ávarp á ráðstefnu Uppbyggingarsjóðs EES og Noregs í Varsjá í vikunni, en í Póllandi eru fjölmörg samstarfsverkefni á vegum Uppbyggingarsjóðsins. Á ráðstefnunni var undirritaður nýr samstarfssamningur milli Uppbyggingarsjóðsins og Póllands um ný samstarfsverkefni í menningarmálum. 

 

 

Meira verður það ekki í bili, 

kveðja, Upplýsingadeild.