24 apríl 2026

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Málstofa n.k. þriðjudag: Skapandi greinar 🖤 Nýsköpun

{image.Description}

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið stendur fyrir hliðarviðburði n.k. þriðjudag á Nýsköpunarviku undir yfirskriftinni: Skapandi greinar 🖤 Nýsköpun -  samlegð skapandi greina við nýsköpun.

Fjallað verður um að hverju þarf að huga beggja vegna í miðri tæknibyltingu, og í hverju felast mestu verðmætin til framtíðar. Eru listir og skapandi greinar í miðju nýsköpunarheimsins eða á jaðrinum? Hvernig búum við í haginn fyrir skapandi skörun ólíkra greina? Og hvað geta þau sem starfa innan lista, vísinda og nýsköpunar lært hver af öðrum?

Halla Oddný Magnúsdóttir fjölmiðlakona stýrir umræðum.

Í pallborði sitja:

  • Arnar Sigurðsson frumkvöðull og stofnandi East of Moon
  • Guðrún Inga Ingólfsdóttir formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs
  • Hjálmar Gíslason stofnandi CEO GRID
  • Margrét Helga Ögmundsdóttir prófessor og stofnandi Ternaria Biosciences

Viðburðurinn er ætlaður öllum sem hafa áhuga á nýsköpun, skapandi greinum og því hvernig ólík svið geta komið saman til að móta framtíðina. Boðið verður upp á hádegishressingu.

28. apríl 2026
11:40 – 12:40
Fenjamýri, Gróska – Hugmyndahús, Kristínargata 1,

Viðburðurinn er opinn öllum en nauðsynlegt er að skrá sig hér.

Hvaða hlutverki gegna skapandi greinar í nýsköpun samtímans_ (2).gif