27 apríl 2026
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Sameiginlegir vinir íslenskunnar og Apple – myndband
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Logi Einarsson fundaði í síðustu viku ásamt með fulltrúum tæknifyrirtækisins Apple í höfuðstöðvum þeirra í Battersea í London. Erindi fundarins var að óska eftir því að íslenska verði hluti af iOS stýrikerfi Apple en engin tæki frá framleiðandanum eru nú fáanleg með íslensku notendaviðmóti. Lagði ráðherra áherslu á hve mikilvægt það væri tungumáli sem varðveist hefur í yfir 1000 ár að það þróist samhliða nýjustu tækni og að nýjasta tækni sé aðgengileg á íslensku. Ekki síst með tilliti til aðgengismála og því afhenti ráðherra fulltrúum Apple áskorun fyrir hönd ÖBÍ þar sem fyrirtækið er hvatt til þess að innleiða íslensku og standa þannig vörð um eitt af kjarnagildum sínum sem er aðgengi.
Afhverju skiptir íslenska máli?
Íslensk tónlist, bókmenntir og sjónvarpsefni bera hróður íslenskrar menningar víða. Fjölbreytt íslenskt efni er aðgengilegt á streymisveitum Apple og fjölmargir íslenskir listamenn hafa átt í beinu samstarfi við fyrirtækið. Sem dæmi má nefna að leikararnir Ólafur Darri Ólafsson og Hera Hilmarsdóttir léku í vinsælum þáttaröðum Apple TV+. Þá hlaut tónskáldið Atli Örvarsson BAFTA-verðlaun og Emmy-tilnefningu fyrir tónlist sem hann samdi fyrir sjónvarpsþætti framleidda af Apple. Þá hljómar tónlist hljómsveitarinnar Inspector Spacetime í nýrri auglýsingu fyrir iPhone 17 Pro.
„Íslensk menning er einstök og gerir sig gildandi hvar sem er í heiminum. Við erum ekki mörg en við erum fær í mörgu. Það kom upp sú hugmynd að enda fundinn á að bera Apple kveðju frá sameiginlegum vinum Apple og íslenskunnar með stuttu myndbandi. Að íslenskum sið var hóað í sameiginlega vini án fyrirvara og þeir beðnir að senda kveðju sem tókst svona glimrandi vel og vakti mikla lukku viðstaddra,“ segir Logi.
Í myndbandinu lýsa sameiginlegir vinir ástríðu sinni fyrir tungumálinu og afhverju það skiptir máli að tungumálið sé aðgengilegt í nýjustu tækni.
„Það er einstök fegurð fólgin í því að þegar kemur að tungumálinu okkar erum við sammála um að hlúa að þessari gersemi svo hún vaxi og dafni með okkur um ókomna tíð. Ég er ákaflega þakklátur þeim listamönnum sem aðstoðuðu okkur í að koma þessari kveðju saman og öllum þeim sem standa vörð um tungumálið okkar dagsdaglega með ýmsum hætti,“ segir ráðherra.