27 apríl 2026

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Styrkur til Leigjendasamtakanna

{image.Description}
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Yngvi Ómar Sigrúnarson, formaður Leigjendasamtakanna.

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur veitt Leigjendasamtökunum styrk en þau vinna að hagsmunagæslu og upplýsingagjöf fyrir leigjendur á húsnæðismarkaði. Leigjendasamtökin hafa einnig fundað með ráðherra og munu taka þátt í verkefnum sem kynnt voru nýverið og miða að því að styrkja stöðu leigjenda og bæta leigumarkaðinn:

  • Réttindum haldið á lofti. Ráðist verður í kynningarátak um réttindi og skyldur leigjenda og leigusala, meðal annars um takmarkanir á heimildum leigusala til að hækka leigu á samningstíma og heimildir til að bera leigufjárhæð undir kærunefnd húsamála. Er það gert þar sem vísbendingar eru um að leigjendur og leigusalar séu ekki meðvitaðir um rétt sinn og þær réttarbætur sem lagabreytingar undanfarinna ára hafa falið í sér.

  • Góðar starfsvenjur á leigumarkaði. Unnin verður handbók um góðar starfsvenjur leigusala. Um verður að ræða samstarfsverkefni stjórnvalda, leigufélaga og annarra hagaðila á leigumarkaði, svo sem Leigjendasamtakanna og Húseigendafélagsins. Markmiðið er að auðvelda bæði leigufélögum og einstaklingum sem leigja út húsnæði að haga starfsemi sinni í samræmi við húsaleigulög. 

  • Rýnt í húsnæðisbætur. Húsnæðisbótakerfið verður tekið til endurskoðunar með það að markmiði að stuðningurinn nýtist betur tekju- og eignaminni hópum á húsnæðismarkaði. Rýnt verður hvernig stuðningurinn nýtist í gildandi kerfi og tillögur til úrbóta lagðar fram. 

  • Tryggingafé endurskoðað. Fyrirkomulag húsaleigutrygginga samkvæmt húsaleigulögum verður tekið til endurskoðunar. Ágreiningur um endurgreiðslu tryggingafjár er algengasta ágreiningsefnið hjá kærunefnd húsamála og vísbendingar eru um að ekki sé nægilega vel farið eftir gildandi ákvæðum húsaleigulaga. Skoðað verður hvort bæta þurfi lagaumhverfið enn frekar eða stuðla með öðrum hætti að því að farið sé eftir lögunum.

Þá hafa Leigjendasamtökin lengi kallað eftir aðgerð sem einnig verður ráðist í og felur í sér að mánaðarleg vísitölutenging húsaleigu verður óheimil. Aðeins verður heimilt að hækka leigufjárhæð einu sinni á 12 mánaða fresti samkvæmt húsaleigulögum. Markmiðið er að stuðla að stöðugleika og auknum fyrirsjáanleika um leiguverð milli mánaða.