28 apríl 2026

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Krónan og Humble hljóta Kuðunginn og nemendur Brekkubæjarskóla eru Varðliðar umhverfisins

{image.Description}
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, afhendir Krónunni Kuðunginn.

Fyrirtækin Humble og Krónan hlutu í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Segir í úrskurði dómnefndar að Humble hafi með eftirtektarverðum hætti dregið úr matarsóun á Íslandi og að sá metnaður sem Krónan hafi sýnt með stuðningi við nýjar og skapandi leiðir til þess að draga úr myndun úrgangs síðastliðinn áratug sé ekki síður lofsverður. Við sama tækifæri voru nemendur í Brekkubæjarskóla á Akranesi útnefndir Varðliðar umhverfisins.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: 

„Það er augljóst að það er mikil gróska í umhverfismálum víða í samfélaginu. Við sjáum nýsköpun, framsýni og metnað og það sést vel í þeim fjölda tilnefninga sem bárust. Hér erum við að sjá bæði unga fólkið og atvinnulífið, stór og smá fyrirtæki, taka þátt í sömu vegferð.

Ég held að það sé óhætt að segja að þetta hafi ekki verið auðvelt verkefni fyrir dómnefndina en þau sem hljóta viðurkenninguna að þessu sinni hafa lagt fram framúrskarandi vinnu og standa vel að baki þeim árangri sem hér er verið að viðurkenna.

Þetta staðfestir líka það sem við erum að sjá í auknum mæli. Áhersla á sjálfbærni er bæði rétt og skynsamleg. Ég held að það sé alveg ljóst að hún skilar sér bæði fyrir umhverfið og í því hvernig fyrirtæki tengjast viðskiptavinum sínum.

Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá áhugann hjá unga fólkinu. Allir þeir grunnskólar sem sendu inn tilnefningu eiga mikið hrós skilið. Þessi verkefni gefa okkur góða innsýn í hvað unga kynslóðin er að hugsa og hvaða áherslur hún vill sjá í framtíðinni. Meira svona!“

Humble hlaut Kuðunginn í flokki smærri fyrirtækja.

Humble og Krónan hljóta Kuðunginn

Í rökstuðningi dómnefndar fyrir valinu á Humble sem handhafa Kuðungsins 2025 segir að Humble hafi frá upphafi haft mikilvægi þess að draga úr matarsóun að leiðarljósi. Fyrirtækið hefur vaxið tífalt á liðnu ári og þar með bjargað umtalsverðum verðmætum frá því að enda sem úrgangur með tilheyrandi áhrifum á umhverfið. Árið 2025 kom fyrirtækið í veg fyrir að 31 tonn af matvælum væru hent og kom með því í veg fyrir losun sem svara til 100 tonna CO2.

Segir í niðurstöðu dómnefndar að árangur Humble af því að draga úr matarsóun sýni að þegar réttu verkfærin eru til staðar þá séu möguleikar til breytinga miklir.

Í rökstuðningi sínum fyrir valinu á Krónunni lofar dómnefndin úthaldið sem verslanakeðjan hafi sýnt í umhverfismálum, allt frá því Krónan setti sér það markmið að vera í fararbroddi við rekstur sjálfbærari matvöruverslana fyrir um áratug síðan. Nýleg Svansendurvottun allra verslana Krónunnar, sýni að hvergi hafi verið hvikað af þeirri leið, en í dag er Krónan eina verslanakeðjan á Norðurlöndunum sem getur státað af Svansvottun allra sinna verslana. Metnað Krónunnar í umhverfismálum segir dómnefndin birtast á ýmsan hátt, til að mynda með stuðningi við nýjar og skapandi leiðir til að draga úr myndun úrgangs, stuðningi við minni innlenda matvælaframleiðendur og jafnframt hafi verslunarkeðjan markvisst dregið úr kolefnisspori sínu, m.a. með rafbílavæðingu og útskiptingu kælimiðla svo fátt eitt sé talið.

Áhersluna sem Krónan leggi á að gera umhverfisþáttinn sýnilegan og þar með aðgengilegan neytendum beri einnig að þakka og þar með þau jákvæðu áhrif sem verslanakeðjan hafi á daglegt líf fjölda landsmanna.

Verðlaunagripurinn Kuðungurinn er hannaður af þeim Birtu Rós Brynjólfsdóttur og Hrefnu Sigurðardóttur hjá Fléttu hönnunarstofu, en þær hafa sérhæft sig í að hanna úr endurnýttum efnivið. Við hönnun og framleiðslu Kuðungsins settu þær sér fastar skorður og nýttu til þess eingöngu endurnýttan efnivið eða afgangsefni frá annarri framleiðslu. Grunnur verðlaunagripsins er gerður úr lituðu timbri frá Sorpu sem annars færi til urðunar, og á toppnum trónir steinn sem minnir á hrafntinnu en er í raun aukaafurð frá framleiðslu steinullar hér á landi. Hráefnin koma svo saman í spíral og vísar formið þannig til kuðungsins sem verðlaunin eru kennd við.

Humble og Krónan öðlast rétt til að nýta merki verðlaunanna í kynningu á starfsemi sinni.

Í dómnefnd sátu Benedikt Traustason, formaður, Reynir Smári Atlason, f.h. Samtaka atvinnulífsins, Auður Alfa Ólafsdóttir f.h. Alþýðusambands Íslands og Bára Hulda Beck, f.h. félagasamtaka á sviði umhverfisverndar.

Nemendur í 10. bekk Brekkubæjarskóla taka á móti Varðliðaviðurkenningunni 2026.

Nemendur Brekkubæjarskóla Varðliðar umhverfisins 2026

Nemendur í 10. bekk Brekkubæjarskóla á Akranesi voru útnefndir Varðliðar umhverfisins 2026. Viðurkenninguna hljóta nemendur fyrir verkefnið og viðburðinn Fræðslusmakk, en með því köfuðu nemendur ofan í fjölbreytt viðfangsefni loftslags- og umhverfismála, sem kynnt voru skólasamfélaginu, fjölskyldum og gestum og gangandi á sérstökum loftslagsviðburði í skólanum.

Það er einróma mat valnefndar að nemendur 10. bekkjar Brekkubæjarskóla séu þess verðug að vera Varðliðar umhverfisins 2026 fyrir vel unnin og skapandi verkefni, sem vakið hafi gesti til umhugsunar um mikilvægi fjölbreyttra þátta umhverfis- og loftslagsmála og veiti um leið hugmyndir að lausnum á loftslagsvandanum

Rökstuðningur dómnefndar Kuðungsins

Rökstuðningur valnefndar Varðliðanna